Helga Magga heldur áfram að toppa sig

Helga Magga búin að toppa sig enn og aftur en …
Helga Magga búin að toppa sig enn og aftur en hún útbýr einfaldasta kjúklingaréttinn í bænum sem allir ættu að geta leikið eftir. Samsett mynd

Nú er konu­dag­ur­inn handa við hornið, sunnu­dag­inn 25. fe­brú­ar, og í til­efni þess eru marg­ir farn­ir að und­ir­búa kræs­ing­ar til að bjóða sinni konu upp á. Helga Magga, heil­su­markþjálfi og róm­an­tíker með meiru, hef­ur farið á kost­um und­an­farið í eld­hús­inu og gerði róm­an­tísk­an Valentínus­ar-graut á dög­un­um. Nú er hún búin að toppa sig enn og aft­ur en hún út­býr ein­fald­asta kjúk­linga­rétt­inn í bæn­um sem all­ir ættu að geta leikið eft­ir og komið sinni konu á óvart með. Hún er svo sann­ar­lega sniðugri en flest­ir.

Hér fyr­ir neðan getið þið séð hvernig Helga Magga út­býr þenn­an ljúf­fenga og ein­falda kjúk­linga­rétt sem get­ur glatt konu­hjartað.

Helga Magga heldur áfram að toppa sig

Vista Prenta

Konu­dagskjúk­linga­rétt­ur­inn henn­ar Helgu Möggu

  • 1 msk. olía
  • 750 g kjúk­linga­bring­ur (750 g)
  • 2-3 hvít­lauksrif
  • 100 g sólþurrkaðir tóm­at­ar (10 -12 stk.)
  • 360 g risotto hrís­grjón
  • 900 ml kjúk­linga­soð úr brúsa
  • 200 ml mat­reiðslur­jómi
  • 1 tsk. hvít­laukskrydd
  • 1 tsk. paprikukrydd
  • 1 tsk. tim­i­an (krydd)
  • Salt og pip­ar eft­ir smekk
  • Fersk basilíka, magn eft­ir smekk, skor­in niður og sett yfir á hvern disk
  • Par­mes­an-ost­ur til að rífa yfir rétt­inn þegar hann er bor­inn fram

Aðferð:

  1. Byrjið á því að skera kjúk­ling­inn í bita, steikið hann upp úr ol­í­unni og steikið hann í gegn. Kjúk­ling­ur­inn er kryddaður til með salti, pip­ar, hvít­lauk, papriku og tim­i­an.
  2. Skerið sólþurrkuðu tóm­at­ana í bita ásamt hvít­laukn­um, bætið þessu tvennu út á pönn­una og steikið áfram í um tvær mín­út­ur.
  3. Hrís­grjón­un­um er svo bætt út á pönn­una ásamt 900 ml af kjúk­linga­soðinu.
  4. Blandið þessu sam­an, setjið lok á og látið þetta malla á miðlungs hita í um 20 mín­út­ur. Gott að hræra einu sinni í þessu eft­ir um tíu mín­út­ur.
  5. Þegar 20 mín­út­ur eru liðnar ættu hrís­grjón­in að vera soðin.
  6. Blandið þá mat­reiðslur­jóm­an­um út í rétt­inn og berið fram.
  7. Gott að setja ferska basilíku yfir á hvern disk ásamt rifn­um par­mes­an-osti.
  8.  Með þessu er gott að bera fram hvít­lauks­brauð eða nan-brauð ásamt fersku sal­ati.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert