Öðruvísi vínarbrauð að hætti Húsó

Svona lítur Húsó-vínarbrauðið út og er einstaklega gott með ískaldri …
Svona lítur Húsó-vínarbrauðið út og er einstaklega gott með ískaldri mjólk eða kaffi. mbl.is/Árni Sæberg

Fast­ur liður á laug­ar­dags­morgn­um á mat­ar­vefn­um eru upp­skrift­irn­ar úr Húsó-eld­hús­inu sem njóta mik­ill vin­sælda hjá les­end­um. Að þessu sinni er það öðru­vísi vín­ar­brauð að hætti Húsó með rabarbara­sultu. Þetta vín­ar­brauð er aðeins öðru­vísi en hefðbundið vín­ar­brauð hvað varðar út­lit og bragð og ótrú­lega gam­an að baka það með þess­ari út­færslu. Ein­falt og þægi­legt og hrá­efn­is­kostnaður­inn í lág­marki. Nostal­g­ía fyr­ir marga að njóta ein­fald­leik­ans sem þekkt­ur var hér áður fyrr og er alls ekki síðri.

Aldrei með tíma­setn­ing­ar í upp­skrift­um okk­ar

Vert er að geta þess að Marta María Arn­ars­dótt­ir skóla­meist­ari Hús­stjórn­ar­skól­ans minnt­ist á það við und­ir­ritaða að ekki væri alltaf miðað við ákveðin bakst­urs­tíma þegar verið er að kenna bakst­ur. „Við erum aldrei með tíma­setn­ingu í upp­skrift­um okk­ar, hve lengi allt á að vera í ofn­in­um því það er part­ur af kennsl­unni hjá okk­ur,“ seg­ir Marta María og seg­ir það gefa góð raun og nem­end­ur læri að fara líka eft­ir til­finn­ing­unni. 

Öðruvísi vínarbrauð að hætti Húsó

Vista Prenta

Vín­ar­brauð með rabarbara­sultu að hætti Húsó

  • 1 ½ bolli hveiti
  • 1 tsk. lyfti­duft
  • ½ bolli syk­ur
  • ½ tsk. vanillu­syk­ur
  • ¼ tsk. kar­dimomm­ur, má sleppa
  • 75-100 g smjör­líki
  • 1 egg

Til að setja inn í:

  • Rabarbara­sulta eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Blandið sam­an þur­refn­um í skál eða í hrúgu á borð.
  2. Myljið kalt smjör­líkið sam­an við.
  3. Hellið síðan vökv­an­um út í skál­ina (eggj­um og drop­um) og hrærið deigið sam­an með sleif.
  4. Hnoðið það svo á borði þar til það er sam­fellt.
  5. Hægt er að nota mjólk til að hnoða upp í hæfi­lega mjúkt deig eða þá bæta við ör­litlu hveiti ef deigið er of blautt.
  6. Fletjið deigið út með köku­kefli og skerið í tvær lengj­ur.
  7. Setjið síðan rabarbara­sulta sett inn í, smyrjið lengj­urn­ar.
  8. Rúllið lengj­un­um upp og setjið á ofn­plötu klædda bök­un­ar­papp­ír
  9. Setjið inn í ofn og bakið við 180°C hita, þangað til að lengj­urn­ar eru orðnar gull­in­brún­ar og fal­leg­ar.
  10. Berið fram og njótið.
mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert