Nýtt smá forrit sem hannað er til þess að bæta og einfalda skilvirkni atvinnueldhúsa hefur litið dagsins ljós. Það er GreenBytes sem kynnir með stolti smáforritið Biti og er það væntanlegt á markað á föstudaginn, 1. mars næstkomandi. Biti stefnir á auka skipulag og skilvirkni eldhúsa á notendavænan, hagkvæman og einfaldan máta fyrir veitingamenn.
„Biti er matreiðslufélagi hannaður til að einfalda flókin verkefni við að ákveða hvað á að panta, skipuleggja matseðla og fylgjast með birgðastöðu. Með notendavænu viðmóti gerir Biti fagfólki í eldhúsi kleift að hagræða í rekstri sínum með örfáum smellum,“ segir Renata Bade Barajas forstjóri og annar stofnandi GreenBytes.
„Flestir veitingamenn sem ég hef hitt eiga það sameiginlegt að vera mjög uppteknir og undir miklu álagi. Veitingamenn vita hvernig á að reka eldhúsið sitt en allt fellur á herðar þeirra. Við hönnuðum Bita til að virkja þekkingu þeirra og leyfa þeim að gera hlutina sína hraðar og dreifa þeirri þekkingu til nýs starfsfólks þegar þörf krefur,“ segir Renata.
GreenBytes býður matgæðingum, veitingamönnum og fagfólki í iðnaði að kanna framtíð eldhússtjórnunar með Bita. Frá og með 1. mars næstkomandi geta notendur keypt aðgang að Bita á þægilegan hátt á vefsíðu þeirra hér.
GreenBytes er tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í að búa til notendavænar lausnir fyrir ýmsar atvinnugreinar. Með áherslu á nýsköpun og einfaldleika, stefnir GreenBytes að því að gjörbylta því hvernig fyrirtæki starfa og hagræða ferlum sínum.