Svona fullkomnar Marta María Húsó-rúllutertuna

Marta María Arnarsdóttir, skólameistari Hússtjórnarskólans kann að gera brúna rúllutertu …
Marta María Arnarsdóttir, skólameistari Hússtjórnarskólans kann að gera brúna rúllutertu með hvítu smjörkremi og lumar á góðu ráði fyrir samsetninguna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Upp­skrift­irn­ar úr Húsó-eld­hús­inu halda áfram á birt­ast hér á mat­ar­vefn­um og gleðja les­end­ur og um leið er kjörið rifja upp augna­blik­in í Húsó-þátt­un­um enda kræs­ing­arn­ar sem stund­um glitti í þátt­un­um al­gjör nostal­g­ía. Nú ljóstr­ar Marta María Arn­ars­dótt­ir skóla­meist­ari Hús­stjórn­ar­skól­ans upp­skrift að brúni rúllu­tertu með hvítu smjörkremi sem bráðnar í munni.

„Það er svo gam­an að gera þessa köku því manni líður eins og al­vöru hús­móður að brasa með þetta hús­ráð með raka viska­stykkið,“ seg­ir Marta María og bros­ir. En hún seg­ir að það skipti sköp­un til að tryggja að rúllu­tert­an brotni ekki þegar henni er rúllað upp að vera með rakt viska­stykki og skella því tvö­falt á kök­una um leið og maður er bú­inn að hvolfa henni á syk­ur­inn.

Hvernig væri að gera vel við sig og sína um helg­ina og bjóða upp á ekta brúna rúllu­tertu að hætti Húsó?

Þessi er best, brúna rúllutertan með hvítu smjörkremi sem bráðnar …
Þessi er best, brúna rúllu­tert­an með hvítu smjörkremi sem bráðnar í munni eins og amma gerði hana. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Svona fullkomnar Marta María Húsó-rúllutertuna

Vista Prenta

Brún rúllu­terta með hvítu smjörkremi

Rúllu­tert­an

  • 3 egg
  • 1 dl syk­ur
  • 1 ½ tsk lyfti­duft
  • 50 g kart­öfl­umjöl
  • 1 msk. hveiti
  • 2-3 msk. kakó

Aðferð:

  1. Þeytið egg og syk­ur sam­an.
  2. Sigtið því næst mjölið í eggja­blönd­una og hrærið var­lega með sleikju þar til öllu er blandað sam­an.
  3. Setjið bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu.
  4. Brjótið bök­un­ar­papp­ír­inn í horn­un­um.
  5. Hellið deig­inu á bök­un­ar­papp­ír­inn, dreifið var­lega úr deig­inu. „Kak­an“ á að vera þunn, líkt og þunn skúffukaka.
  6. Bakið í ofni við 190°C í 6-8 mín­út­ur.
  7. Hvolfið síðan allri kök­unni á sykri stráðan bök­un­ar­papp­ír.
  8. Takið bök­un­ar­papp­ír­inn af kök­unni sem vís­ar nú upp. Bleytið því næst viska­stykki og leggið það rakt, tvö­falt yfir kök­una þar til kremið er sett á.
  9. Þetta er gert til að kök­urn­ar harðni ekki og brotni síður þegar þeim er rúllað upp.
  10. Kremið er sett á kalda kök­una.
  11. Rúllið kök­unni upp.
  12. Leggið rúllu­tert­una á sam­skeyt­in á fal­leg­an bakka.
  13. Ef end­arn­ir eru ljót­ir er sniðugt að skera þá hrein­lega af áður en rúllu­tert­an er bor­in fram.
  14. Leggið huggu­lega á borð og njótið.


Smjörkrem

  • 150 g lint smjör
  • 8 dl flór­syk­ur
  • 1 egg
  • 2 tsk. vanillu­drop­ar

Aðferð:

  1. Öllu hrá­efn­inu hrært sam­an þar til úr verður létt og fal­legt smjörkrem. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert