Upp hefur komið sú staða að út á Granda, nánar tiltekið á Hólmaslóð 4, að kanínur eru að fjölga sér í miklum mæli. Málið hefur vakið mikla kátínu meðal nágranna enda eru umræddar kanínur úr hágæðasúkkulaði.
„Við höfum farið vandlega yfir stöðuna og eru allar hillur núna stútfullar af súkkulaðikanínum í þremur bragðtegundunum,“ segir Kjartan Gíslason, annar af stofnendum Omnom og súkkulaðigerðarmaður brosandi.
Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir unnendur súkkulaðis, en Omnom kynnir til leiks tvær nýjar bragðtegundir af súkkulaðikanínunni þeirra Mr. Carrots. Þær eru nú fáanlegar með 50% mjólkursúkkulaði og Sea Salted Toffee ásamt hinu klassíska lakkríssúkkulaðibragði.
Mr. Carrots er fáanlegur í vefverslun Omnom og verslun þeirra út á Granda, Krónunni út á Granda og Vínberinu. Kanínurnar eru til í mjög takmörkuðu upplagi.