Sturlað Miðjarðarhafs páskaegg

Þetta undursamlega páskaegg sem er tær eftirmynd af ananas ávöxt …
Þetta undursamlega páskaegg sem er tær eftirmynd af ananas ávöxt er skapað af matreiðslumeistaranum Jean Imbert og konditornum Fabrice Fernandes á hinu stórglæsilega Hotel Martinez í Cannes í Suður Frakkland. Samsett mynd

Þetta und­ur­sam­lega páska­egg sem er tær eft­ir­mynd af an­an­as ávöxt og skapað af mat­reiðslu­meist­ar­an­um Jean Imbert og konditorn­um Fabrice Fern­and­es á hinu stór­glæsi­lega Hotel Mart­inez í Cann­es í Suður Frakklandi mun vekja at­hygli sæl­ker­ans.

Fel­ur kara­mellu­hjúpaðar Valencia möndl­ur

Páska­eggið af­hjúp­ar ekki bara hand­verk lista­manna, held­ur er þessi sæl­kera­sköp­un inn­blás­in af regn­hlíf­af­uru Miðjarðar­hafs­ins, fal­leg­um trjá­gróðri með mynd­ar­legri krónu. Dökka súkkulaðiskorp­an sam­an­stend­ur af bragðgóðri möndl­upralín, heima­gerðu cal­isson deigi og er allt þakið fín­gerðum súkkulaðiblöðum. Eggið fel­ur kara­mellu­hjúpaðar Valencia möndl­ur í hjarta eggs­ins sem gleðja matar­frömuði til hins ítr­asta.

Eggið er fyr­ir sæl­kera sem munu gleðjast í hjarta sínu við hvern ein­asta bita sem hann mun leggja sér til munns.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert