Matarhátíðin Food & Fun var haldin með stæl í síðustu viku og var það í 21. skipti sem þessi skemmtilega hátíð er haldin á veitingastöðum víðs vegar um höfuðborgarsvæðið. Fólk var greinilega tilbúið í þessa matar- og drykkjarveislu því allir staðirnir sem tóku þátt í hátíðinni voru uppbókaðir alla daga og virtust gestir almennt mjög ánægðir með það sem í boði var.
Samhliða matarhátíðinni var keppt um hinn eftirsótta Reyka Vodka kokteilbikar en margir af þekktustu barþjónum landsins hafa unnið hann síðustu ár og því var mikil eftirvænting í loftinu hver stæði uppi sem sigurvegari ár. Það var í höndum Barþjónaklúbbs Íslands að sjá um utanumhald á keppninni en þeir sem sátu í dómnefnd voru Valtýr Bergmann frá Dineout sem einmitt var einn af styrktaraðilum Food & Fun, Ingi Sigurðsson en hann hefur unnið á The Aviary í Chicago og var með Pop-up á Tipsy yfir Food & Fun, Eva Marín rekstrarstjóri á Einstök Bar og Fannar Alexander Arason eigandi Klakavinnslunnar.
Þrír keppendur komust áfram í úrslit í aðalkeppnina sem haldin var á Tipsy á laugardaginn síðastliðinn. Það voru Steinþór Helgi frá Skreið, Daníel frá Sushi Social og Lára frá La Primavera og reyndist það dómnefnd ekki auðvelt að velja á milli þessara þriggja frábæru kokteila sem þríeykið framreiddi. Lokapartí kokteilkeppninnar var svo haldið á Sæta svíninu og var sigurvegari keppninnar kunngerður þar með pomp og prakt fyrir fullu húsi. Sá sem bar sigur úr býtum var Steinþór Helgi frá Skreið og fékk hann hinn eftirsótta Reyka Vodka kokteilbikar ásamt ferð til heimsborgarinnar Lundúna þar sem hann mun fræðast um bar senuna þar í borg undir leiðsögn Brand Ambassadors Reyka Vodka.