OREO og PAC-MAN hafa hafið samstarf og bjóða upp á leik og sér framleidda OREO PAC-MAN kexpakka með sérstaklega skreyttum OREO PAC-MAN kexkökum, sem koma í takmörkuðu magni. OREO PAC-MAN kexpakkarnir verða til sölu í verslunum í mars og leikur í tilefni af samstarfinu allan mánuðinn.
Neytendur geta tekið þátt í leiknum með því að kaupa sérmerkta OREO PAC-MAN kexpakka í verslunum og skanna QR-kóða á pökkunum. Með því að skanna QR-kóðann á pökkunum fá neytendur aðgang að skemmtilegum PAC-MAN leik og eiga möguleika á að vinna flottan Mini OREO PAC-MAN spilakassa. Allar upplýsingar um leikinn eru hægt að nálgast á www.oreo.is
Allir sem taka þátt í leiknum fara í pott og geta unnið aðalvinning leiksins sem er ferð í viku fyrir tvo til Tokýó í Japan þar sem spilasalur NAMCO sem er eigandi PAC-MAN vörumerkisins verður meðal annars heimsóttur.
Í tilefni af leiknum verður efnt til sérstakra OREO PAC-MAN leikjaviðburða 16. og 23. mars í Arena leikjasalnum á Smáratorgi. Þar verður hægt að spila OREO PAC-MAN leikinn á heimasíðu leiksins og líka í sérstökum retro OREO leikjakassa sem kom til landsins sérstaklega í tilefni að leiknum. Lukkuhjól verður á staðnum sem þátttakendur eiga möguleika á að snúa og vinna m.a OREO PAC-MAN tölvuspil, OREO glös eða OREO kexpakka.