Salat vikunnar ómótstæðilegt andasalat með appelsínusósu

Ómótstæðilegt andasalat borið fram með hnetublöndu og appelsínusósu.
Ómótstæðilegt andasalat borið fram með hnetublöndu og appelsínusósu. Ljósmynd/Jón K. B. Sigfússon

Hið ómót­stæðilega anda­sal­at Vín­stof­unn­ar er sal­at vik­unn­ar á mat­ar­vefn­um og líka það fyrsta til að hljóta titil­inn „Sal­at vik­unn­ar“. Sal­at vik­unn­ar verður fram­veg­is fast­ur liður á mat­ar­vefn­um og verður valið úr þeim sal­atupp­skrift­um sem birt­ast á mat­ar­vefn­um og und­ir­rituð verður búin að út­búa og smakka. Anda­sal­at Vín­stof­unn­ar er bæði ferskt og létt og þessi app­el­sínusósa sem bor­in er fram með anda­sal­at­inu er unaðslega góð, hrein­ir töfr­ar og sú ein­fald­asta í heimi. Ég myndi vilja kalla hana leyn­isósu Vín­stof­unn­ar á Friðheim­um.

Maður­inn bak við töfr­ana í eld­hús­inu, Jón K. B. Sig­fús­son, ljóstr­aði upp leynd­ar­mál­inu bak við anda­sal­atið á dög­un­um hér á mat­ar­vefn­um en sal­atið er nýtt á mat­seðli Vín­stof­unn­ar.  Nú er bara að prófa þetta dýrðlega sal­at sem boðar vorið og sól­ina og töfra mat­ar­gest­ina upp úr skón­um.

Sal­at vik­unn­ar ómót­stæðilegt anda­sal­at með app­el­sínusósu

Vista Prenta

Anda­sal­at Vín­stof­unn­ar

Fyr­ir 1-2

  • Anda­bring­ur, 5-6 sneiðar (100 g )
  • Trönu­ber og döðlur eft­ir smekk
  • Ferskt basil, gróf saxað
  • Piccolo tóm­at­ar ,skorn­ir í tvennt
  • Mozzar­ella perl­ur eft­ir smekk
  • Manda­rín­ur eða app­el­sínu, skorn­ar í ten­inga
  • Granatepla­fræ
  • Blá­ber eft­ir smekk
  • Spír­ur eft­ir smekk

Hnetu­blanda

  • Pek­an­hnet­ur eft­ir smekk
  • Furu­hnet­ur eft­ir smekk
  • Möndl­ur eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita ofn­inn í 150°C hita.
  2. Brúnið anda­bring­una á pönnu og kryddið með salti og pip­ar eft­ir smekk.
  3. Rífið app­el­sínu­börk yfir og klárið að elda önd­ina í ofni í 15 mín­út­ur við 150 °C hita. 
  4. Hægt að bera önd­ina fram volga eða kalda, fer eft­ir smekk hvers og eins og aðstöðu að hverju sinni.
  5. Ristið hnetu­blönd­una á pönnu með smá salti og trönu­berj­um og bætið síðan döðlum út í heita blönd­una.
  6. Setjið síðan sam­an sal­atið að vild.

Köld app­el­sínusósa

  • App­el­sínuþykkni (Eg­ils)
  • Ólífu­olía
  • Dijons­inn­ep með sinn­eps­fræj­um
Aðferð:
  1. Setjið jöfn hlut­föll af hrá­efn­inu í skál, t.d. einn dl. af hverju.
  2. Hrærið og blandið vel sam­an.
  3. Út í sós­una má setja andafit­una sem verður eft­ir á pönn­unni ef vill.
  4. Berið sal­atið fram með app­el­sínusós­unni og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert