Ebba Katrín laumaðist í mat í Húsó

Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona og aðalpersónan í sjónvarpsþáttaröðinni Húsó laumaði …
Ebba Katrín Finnsdóttir leikkona og aðalpersónan í sjónvarpsþáttaröðinni Húsó laumaði sér í mat í Húsó. Samsett mynd

Ebba Katrín Finns­dótt­ir leik­kona laumaði sér í há­deg­is­mat í Hús­stjórn­ar­skól­ann, alla jafna kallaður Húsó, á dög­un­um á meðan hún var í mynda­töku fyr­ir tíma­ritið Ice­land review í ná­grenn­inu.

Ebba Katrín fór með hlut­verk Heklu í sjón­varpsþáttaröðinni Húsó sem sýnd var á RÚV í byrj­un árs og naut mik­ill­ar vin­sæld­ar en aðal­sögu­svið þátt­anna var Hús­stjórn­ar­skól­inn í Reykja­vík.  Tök­urn­ar fór­um mest megn­is fram í Húsó og aðal­s­per­són­an Hekla, sem Ebba Katrín leik­ur, hef­ur verið inn og út af meðferðar­stofn­un­um frá ung­lings­aldri. Þegar hún miss­ir for­ræði yfir dótt­ur sinni ger­ir hún til­raun til að halda sig á beinu braut­inni með því að skrá sig í Hús­stjórn­ar­skól­ann í Reykja­vík.

Al­veg dol­fall­in þegar hún sá Ebbu Katrínu

Einn nem­andinn við skól­ann, Haf­dís Jón­as­dótt­ir, sem opnaðir dyrn­ar þegar Ebba Katrín barði á dyr­um, varð al­veg dol­fall­in þegar hún sá leik­kon­una standa í dyra­gætt­inni og hrópaði upp fyr­ir sig: „Guð minn góður,“ og í öllu óðag­ot­inu gleymdi Haf­dís að bjóða henni inn og hljóp inn í eld­hús og sagði öll­um að Hekla sjálf væri mætt í Húsó. Henni lá svo mikið niðri fyr­ir að sjá leik­kon­una mæta á svæðið enda horft á alla þætt­ina með stjörn­ur í aug­un­um.

Spjallið við nem­end­ur um skól­ann

Ebbu Katrínu var síðan boðið inn og boðið til há­deg­is­verðar með nem­end­um sem hún þáði með þökk­um. „Hún spjallaði við nem­end­ur um skól­ann, hvort það væri allt eins í al­vör­unni eins og í þátt­un­um. Hún sagði okk­ur jafn­framt að hún væri búin að hekla peysu á sig eft­ir að tök­um lauk og fékk að prufa sig áfram í prjóni. Hún ljóstraði því upp að hún hefði ekki prjónað mikið í tök­un­um sjálf­um en í þátt­un­um voru ráðnir inn nokkr­ir auka­leik­ar­ar sem voru ný­út­skrifaðir nem­end­ur úr Húsó sem voru nem­end­ur vet­ur­inn 2022-2023 og það auðveldaði ferlið að kenna al­vöru leik­ur­um réttu hand­tök­in og að gera hlut­ina eins ná­kvæm­lega og unnt er,“ seg­ir Marta María Arn­ars­dótt­ir skóla­meist­ari Hús­stjórn­ar­skól­ans.

Ebba Katrín fékk að prufa sig áfram í prjóni með …
Ebba Katrín fékk að prufa sig áfram í prjóni með nem­end­un­um í Húsó. Ljós­mynd/​Katrín Júlía Ní­els­dótt­ir

Eng­in drama­tík í al­vör­unni

Ebba Katrín fékk sæti til borðs hliðina á Haf­dísi, nem­and­an­um sem opnaði fyr­ir henni, sem var ein­stak­lega skemmti­legt. En föst sæta­skip­an er til borðs í skól­an­um og svo vildi til að laust var hliðina á Haf­dís. „Það var virki­lega gam­an að spjalla við Ebbu Katrínu í al­vör­unni, hún er svo ynd­is­leg og ein­læg mann­eskja. Hún spurði ein­mitt hvort það væri allt eins í skól­an­um eins og þátt­un­um en við sögðum henni að það væri létt­ara yf­ir­bragð hjá okk­ur, létt og skemmti­legt spjall og eng­in drama­tík líkt og í Húsó þátt­un­um,“ seg­ir Haf­ís með bros á vör. „Það var líka spjallaði um borðsiði en þátt­un­um var ekk­ert verið að fara yfir þá en í raun­inni eru borðsiðir ávallt í fyr­ir­rúmi í skól­an­um og fóru við nem­end­urn­ir yfir þá með Ebbu Katrínu.“

Ebba Katrín Finnsdóttir fékk sæti til borðs hliðina á Hafdísi …
Ebba Katrín Finns­dótt­ir fékk sæti til borðs hliðina á Haf­dísi Jón­as­dótt­ur sem opnaði dyrn­ar fyr­ir henni þegar hún mætti. Ljós­mynd/​Katrín Júlía Ní­els­dótt­ir

Ofn­bakaður fisk­ur og kakósúpa

Aðspurð sagði Marta María að Ebbu Katrínu hafi verið boðið upp á ofn­bakaðan fisk í rjóma­ostasósu ásamt hýðis­hrís­grjón­um og fersku sal­ati og í eft­ir­rétt kakósúpu. „Upp­skrift­irn­ar okk­ar úr eld­hús­inu í Húsó hafa verið að birt­ast á mat­ar­vef mbl.is á laug­ar­dags­morgn­um í vet­ur og meðal ann­ars upp­skrift­in að kakósúp­unni sem hef­ur notið mik­illa vin­sælda,“ seg­ir Marta María. Mik­il ánægja var meðal nem­enda og starfs­fólks að fá Ebbu Katrínu í mat og mikið rædd um Húsó-þætt­ina og skól­ann eins og hann er í raun­veru­leik­an­um.

Ebba Katrín ásamt skólameistaranum og starfsteyminu í Hússtjórnarskólanum, Marta María …
Ebba Katrín ásamt skóla­meist­ar­an­um og starfsteym­inu í Hús­stjórn­ar­skól­an­um, Marta María Arn­ars­dótt­ir, Katrín Jó­hanns­dótt­ir tex­tíl­kenn­ari, Guðrún Sig­ur­geirs­dótt­ir mat­reiðslu­kenn­ari, Edda Guðmunds­dótt­ir handa­vinnu­kenn­ari og Ebba Katrín Finns­dótt­ir. Ljós­mynd/​Katrín Júlía Ní­els­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert