Ef þig vantar innblástur að því hvernig megi skreyta heimilið fyrir páskana og dekka matarborðið fyrir páskamáltíðina þá er innlit til Svönu Lovísu Kristjánsdóttur góð hugmynd. Svana er fagurkeri fram í fingurgóma og sniðugri en flestir þegar kemur að því að skreyta og leggja fallega á borð fyrir hátíðleg tilefni eins og páskana.
Svana er menntuð sem upplifunar og vöruhönnuður og starfa við efnisgerð m.a. fyrir samfélagsmiðla og bloggið sitt Svart á hvítu sem hún byrjaði með fyrir 15 árum síðan þar og á Instagram sýni hún frá ýmsu tengdu heimilum og hönnun í bland við persónulegt efni. Svana starfa einnig sem viðburðarhönnuður og fjölmiðla/samfélagsmiðlastjóri fyrir Epal. Þegar verk hennar eru skoðuð er enginn vafi á því að hún kann sitt fag og ástríðan fyrir því sem hún er að gera rennur í blóðinu.
Þegar Svana er beðin um að lýsa páskaþemanu sínu á ár stendur á ekki svörum. „ Ég á ótrúlega mikið magn af fallegum eilífðarblómum sem ég hef nýlega verið að nota í alls kyns blómaskreytingar sem ég útbý fyrir viðburði og veislur fyrir bæði fólk og fyrirtæki. Núna akkúrat var ég með svo mörg af blómunum mínum heima og það vill einnig til að ég er að bíða eftir nýju ljósi yfir borðstofuborðið svo mér fannst tilvalið að útbúa smá blómabombu yfir borðið, heimilisfólkinu til mikillar gleði. Þið sjáið þó aðeins lítið brot af blómasafninu mínu hér á myndunum,“ segir Svana.
Svana segir að ástríða hennar fyrir að stílsera og hafa fallegt kringum sig hafi ávallt verið til staðar. „Ég elska að breyta til og punta hvern krók og kima á heimilinu. Þetta er eitthvað sem hefur alltaf fylgt mér að hafa gaman af öllu sem mætti flokka sem dúllerí og það að gera eitthvað fallegra gefur mér ótrúlega mikla gleði og hugarró. Hugurinn minn er alltaf á fleygiferð og ég fæ stanslaust nýjar hugmyndir sem mig langar til að koma í framkvæmd, þó ég hafi ekki nógu margar klukkustundir í sólarhringnum til að það gæti orðið að veruleika,“ segir Svana dreymin á svip.
Aðspurð segir Svana að hún haldi í ákveðnar hefðir þegar kemur að því að skreyta fyrir páskana. „Það er alveg heilagt á páskunum að draga fram páskaföndur eftir börnin mín sem enn bætist í, gulir málaðir steinar með fjöðrum og annað krúttlegt sem ég elska. Ég er yfirleitt alltaf með greinar í vasa sem ég hengi á máluð egg en í ár vildi ég breyta til svo ég útbjó smá blómabeð, eins konar hreiður í stóra skál frá Ferm Living sem og lagði nokkur egg sem mér finnst skemmtilegt að hafa til skrauts.“
Hver er heitasti páskaliturinn í ár að þínu mati?
„Ætli gulur og hvítur séu ekki oftast grunnurinn en ég er svo litaglöð að bleikur og fjólublár eru alveg ómissandi að hafa með fyrir meiri vorfíling.
Hvort ertu hrifnari af kanínum eða páskaungum sem páskaskrauti?
„Bæði er betra - og meira er líka betra þegar kemur að skrauti finnst mér.“
Vinnur þú mikið með lifandi blóm þegar þú skreytir?
„Já, ég algjörlega elska að skreyta með blómum, en ég tók þó ákvörðun nýlega að notast frekar við vönduð eilífðarblóm og get þá notað hverja blómaskreytingu aftur og aftur. Það er bæði mikið ódýrari valkostur og líka umhverfisvænni, mér fannst eitthvað skrítið við tilhugsunina að flytja inn svona mikið af lifandi blómum til að skreyta fyrir eina veislu og svo lifðu blómin bara í örfáa daga. Blóm gera allt fallegra og þar sem ég heillast svo mikið af óhefðbundnum og dálítið villtum blómaskreytingum sem ég tæmdi oft veskið mitt við að útbúa þá finnst mér svo gaman að geta núna boðið upp á þannig skreytingar sem hægt er að endurnota aftur og aftur. En ég tek þó sérstaklega fram að ég versla enn mikið ad íslenskum ræktuðu blómum og mun seint hætta því,“ segir Svana sem alla jafna er með blóm í vasa og og hrífst um leið og hún finnur blómaangan.
Svönu finnst líka skipta máli að vera með fallegar veitingar sem fanga augað. Þegar von er á gestum með stuttum fyrirvara lumar Svana á góðum ráðum en hún þurfti til að mynda að græja veitingar með stuttum fyrirvara fyrir þessa myndatöku og dó þá ekki ráðalaus. „Mitt besta ráð er að átt þú von á gestum en hefur ekki tíma til að græja veitingar þá er það mín lífsbjörg að kaupa tilbúið en bera það skemmtilega fram með þínu tvisti, ég kom í morgun við hjá Gulla Arnari bakara sem er sælkera handverksbakari hér í Hafnarfirðinum í Flatahrauni. Ég elska litlu litríku eftirréttina hans sem gera borðhaldið extra djúsí og hvað þá ef þú berð þá fram í skeljum, en ég mæli með að prófa bæði,“ segir Svana að lokum og býður ljósmyndaranum upp á litríkar kræsingar að lokinni myndatöku.