Franskur matur er ein helsta ástæða þess að ferðamenn flykkjast til Frakklands en þetta snýst ekki bara um það sem er á disknum. Það er jafnframt franskur kúltúr eða siðir og menning í kringum franskan mat.
Þegar þú kemur inn á veitingastað, þá skaltu ávallt ávarpa starfsmenn með því segja „bonjour“ eða „bonsoir“. Frakkar heilsa á þennan máta og búist við því sama frá gestum á öllum frönskum veitingastöðum.
Mætið tímanlega fyrir borðapöntun. Það þykir kurteisi að hringja til að hætta við borðapöntun ef þú kemst ekki af einhverjum ástæðum. Það er alltaf mælt með því að hringja til að staðfesta pöntunina með 24 klukkustunda fyrirvara eða svara tölvupósti hafir þú pantað á netinu og fengið staðfestingu eða áminningu frá veitingastaðnum.
Ekki grípa í brauðið sem lagt er á borðið. Í Frakklandi er brauðið ætlað til að fylgja máltíðinni, ekki til að borða eins og forrétt. Þér verður ekki boðið smjör með brauðinu. Brauðið er geymt á borðinu við hliðina á disknum þínum, ekki á matardisknum.
Þó að það sé vinsælt í Frakklandi þá er það ekki endilega dæmigert fyrir Frakka að panta einn fordrykk fyrir kvöldmat. Kampavínsglas er þó alltaf góður kostur ef svo ber undir!
Í París, og í Frakklandi almennt, þá muntu venjulega ekki sjá reikninginn þinn nema þú biðjir um hann.
Segðu (l'addition, s'il vous plait) þegar þú nærð augnsambandi við þjóninn og biður um reikninginn. Greiddu reikninginn tafarlaust og haltu ekki borðinu eftir greiðsluna.
„Garçon“ þýðir strákur á frönsku. Ávarpaðu ávallt þjóninn þinn annað hvort „Monsieur“ eða „Mademoiselle“. „Mademoiselle“ er notað fyrir ungar konur og kvenkyns þjóna á öllum aldri og vilja gjarnan heyra það nefnt.