Veitingastaðurinn VON mathús í Hafnarfirði hefur notið mikilla vinsælda síðastliðin ár og veitingahjónin Einar Hjaltason og Kristjana Þura Bergþórsdóttir hlotið verðskuldaða athygli fyrir áherslurnar og framsetninguna í matargerðinni enda matreidd af ástríðu og natni frá upphafi Nú hafa hjónin selt veitingastaðinn VON mathús sem staðsettur er við Strandgötu 75 í Hafnarfirði en það kemur fram á vef Veitingageirans.
Gústav Axel Gunnlaugsson matreiðslumeistari og eigandi Sjávargrillsins hefur keypt veitingastaðinn og meðeigendur hans eru Pétur Lúkas Alexson kokkur og Örn Pálmi Ragnarsson þjónn og samstarfsfélagar á Sjávargrillinu.
Eins og fram kemur á vef Veitingageirans var farið í framkvæmdir og staðurinn fékk andlitslyftingu auk þess sem nýr matseðill hefur litið dagsins ljós. Staðurinn opnaði formlega í gær, miðvikudaginn 3. apríl með nýjum og stærri matseðli og jafnframt var opnunartíminn lengdur, en nú er opið alla daga vikunnar.