Hér er á ferðinni dásamlegur eftirréttur sem er léttur, sætur og smá súr þar sem skyrið leikur aðalhlutverkið. Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir hjá Döðlur og smjör á heiður af uppskriftinni og finnst skyr vera fullkomið til nota í eftirrétti. Þetta er skemmtilegur réttur sem er hægt að leika sér með og gera allt frá grunni svo er bara hægt að skella í skyrið og kaupa sítrónusmjörið og marensinn tilbúinn, allt eftir ykkar tempói.
Dásamlegur eftirréttur sem gleður bragðlaukana.
Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
Skyr með hvítu súkkulaði og sítrónusmjöri
Fyrir 6
- 150 g LU kex
- 50 ml mjólk
- 100 g hvítt súkkulaði
- 1 tsk. vanilludropar
- 500 g vanilluskyr
Aðferð:
- Myljið kexið í matvinnsluvél eða í poka og með kökukefli.
- Dreifið í botn á sex skálum.
- Setjið mjólk og súkkulaði saman í skál og bræðið í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði þangað til það er bráðið.
- Bætið vanilludropum saman við og leyfið kólna lítillega.
- Setjið saman í skál súkkulaðiblönduna og skyrið og hrærið vel saman.
- Gott er að hella í sprautupoka og þannig í glösin, hellið jafnt í glösin, setjið inn í kæli og kælið í 2-3 klukkustundir.
Sítrónusmjör
- 40 g sítrónusafi
- 1 tsk. sítrónubörkur
- 20 g smjör, við stofuhita
- 1 egg, við stofuhita
- 1 eggjarauða
- 55 g sykur
Aðferð:
- Allt sett í blandara og blandað saman þangað til að öll hráefnin hafa blandast vel saman, það á það til að skilja sig í upphafi þá er bara að halda áfram að blanda þangað til allt er rennislétt.
- Þá er blandan sett í pott á lágan hita og hrært í öðru hverju.
- Eftir smá tíma fara að myndast þykkar búbblur sem segir til að það er byrjað að þykkna, hrærið aðeins og takið svo af hellunni og hellið í hreint ílát og leyfið að kólna.
Svissneskur marens
- 2 eggjahvítur
- ½ tsk. cream of tartar
- 100 g sykur
- 1 tsk. vanilludropar
- klípa af salti
Aðferð:
- Öllu blandað saman í skál og sett yfir vatnsbað s.s. pott með vatni í miðlungshita.
- Hitið þangað til að blandan er 71°c eða þangað til að þið getið sett dropa á puttann og nuddað saman og þið finnið ekki lengur sykurkorn.
- Setjið þá í hrærivél og hrærið þangað til að marensinn er orðinn stífþeyttur (Hér er einnig hægt að nota tilbúinn marens).
- Takið skyrið úr kæli og setjið rúma matskeið í hvert glas og dreifið úr með skeiðinni. Setjið marensinn í sprautupoka og sprautið yfir.
- Til að gera hann extra fínan er hægt að nota brennara til að brenna hann aðeins.
- Skreytið með bláberjum eða því sem ykkur finnst passa með.
- Berið fram og njótið.