Þetta girnilega og sumarlega salat er með lambafille og eggaldin og er salat vikunnar á matarvefnum að þessu sinni. Heiðurinn af uppskriftinni á Sigríður Björk Bragadóttir matreiðslumeistari og eigandi Salt Eldhús, sem er alla jafna kölluð Sirrý. Salat vikunnar er fastur liður á matarvefnum og er valið úr þeim salatuppskriftum sem hafa birst á matarvefnum og undirrituð er búin að útbúa og smakka. Salatið hennar Sirrýjar minnir óneitanlega á sumarið og gefur tóninn fyrir það sem koma skal í matargerðinni á næstunni.