Lambakótelettur í raspi eins og þær gerast bestar

Hver elskar ekki lambakótelettur í raspi?
Hver elskar ekki lambakótelettur í raspi? Ljósmynd/Ingunn Mjöll

Marg­ir eiga góða minn­ing­ar um lambakótelett­ur í raspi enda hafa þær notið mik­illa vin­sælda hjá þjóðinni í ár­anna rás. Það er ein­hver nostal­g­ía við þessa kótelett­ur og hefðin hef­ur verið að bera þær fram með kart­öfl­um, græn­um baun­um, rabarbara­sultu og engri sósu. Hver og einn get­ur þó valið það meðlæti sem hon­um þykir best. Ing­unn Mjöll sem held­ur úti vefsíðunni Íslands­mjöll á heiður­inn af þess­ari upp­skrift og borðar hún kótelett­urn­ar með græn­um baun­um og sultu og hef­ur ekki sósu með. 

Lambakótelettur í raspi eins og þær gerast bestar

Vista Prenta

Lambakótelett­ur í raspi

  • Fyr­ir 3
  • 8-10 kótelett­ur, um það bil 3-4 á mann
  • Brauðrasp að eig­in vali
  • 1 egg
  • Krydd eft­ir smekk, Ing­unn not­ar Sea­son all
  • Smjör

Aðferð:

  1. Setjið brauðrasp í skál og þeytið eggið í ann­arri skál, skolið kótelett­urn­ar og þerrið aðeins, veltið þeim síðan fyrst upp úr egg­inu og svo brauðraspinu.
  2. Bræðið smjörið á pönnu á hæsta hita, setjið kótelett­urn­ar á pönn­una og þegar þið sjáið að saf­inn á kjöt­inu er far­inn að koma upp, snúið þeim þá við og lækkið hit­ann á pönn­unni, setjið lokið á og látið malla í um það bil 20-25 mín­út­ur.
  3. Berið fram með því sem hug­ur­inn girn­ist eða á gamla mát­ann, með kart­öfl­um, græn­um baun­um og sultu.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert