Þessir fimm komust áfram í Kokk ársins  

Úrslitin í keppninni Kokkur ársins 2024 verða kunngjörð á morgun …
Úrslitin í keppninni Kokkur ársins 2024 verða kunngjörð á morgun en fimm komust áfram úrslitin í forkeppninni í gær. Samsett mynd

Í gær fór fram for­keppni fyr­ir keppn­ina um Kokk árs­ins 2024 sem hald­in verður í Ikea á morg­un, laug­ar­dag­inn 13. apríl næst­kom­andi. Keppn­in var æsispenn­andi og metnaður­inn hjá kepp­end­um var í fyr­ir­rúmi.

Verk­efni dags­ins var að elda kjúk­linga­bringu og kjúk­linga­legg frá Ísfugl  Það voru sjö kepp­end­ur sem tóku þátt í for­keppn­inni og komust 5 þeirra áfram.  Kepp­end­urn­ir sem komust áfram eru:

  • Wikt­or Páls­son frá Speilsa­len
  • Ísak Aron Jó­hanns­son, Zak veit­ing­ar
  • Hinrik Örn Lárus­son, Lux veit­ing­ar
  • Hinrik Örn Hall­dórs­son, Flóra veit­ing­ar
  • Bjarni Ingi Sig­ur­gísla­son frá Kol
Wiktor Pálsson frá Speilsalen.
Wikt­or Páls­son frá Speilsa­len.
Ísak Aron Jóhannsson, Zak veitingar.
Ísak Aron Jó­hanns­son, Zak veit­ing­ar.
Hinrik Örn Lárusson frá Lux veitingum
Hinrik Örn Lárus­son frá Lux veit­ing­um
Hinrik Örn Halldórsson, Flóra veitingar.
Hinrik Örn Hall­dórs­son, Flóra veit­ing­ar.
Bjarni Ingi Sigurgíslason frá Kol.
Bjarni Ingi Sig­ur­gísla­son frá Kol.


Eft­ir að til­kynnt var hverj­ir kæm­ust áfram voru skyldu­hrá­efni laug­ar­dags­ins kynnt en þau eru:

For­rétt­ur

  • And­ar egg
  • Gullauga kart­öfl­ur
  • Skyr

Aðal­rétt­ur

  • Lambahrygg­ur  3,5 kg.
  • Villt­ur hvít­lauk­ur ( Ramson lauf)
  • Smjör­deig

Eft­ir­rétt­ur

  • Kræki­berja­safi
  • Cacao barry súkkulaði hvítt Zep­hyr 34%
  • Söl

Næsta verk­efni kepp­enda var að skila inn mat­seðil en það þurftu þeir að gera fyr­ir klukk­an 19.00 í gær, fimmtu­dag.  Það verður spenn­andi að fylgj­ast með kepp­end­um spreyta sig á þess­um hrá­efn­um.

Í fyrsta skipti keppni um Græn­met­iskokk árs­ins

Í dag föstu­dag fer fram í fyrsta skipti keppn­in um Græn­met­iskokk árs­ins, þar eru fimm kepp­end­ur skráðir til leiks en þeir eru:

  • Bjarki Snær Þor­steins­son, Lux veit­ing­ar
  • Bjarni Hauk­ur Guðna­son, Hvíta húsið
  • Kristján Þór Bend­er Eðvarðsson, Bláa Lónið
  • Þór­ar­inn Eggerts­son, Smakk veit­ing­ar
  • Monica Daniela Panait, Hót­el Geys­ir

Kepp­end­ur hafa 5 klukku­tíma til und­ir­bún­ings og verða ræst­ir með 5 mín­útna milli­bili.

Eldaður verður þriggja rétta mat­seðil fyr­ir 12 manns sem sam­an­stend­ur af eft­ir­far­andi grunn hrá­efn­um:

For­rétt­ur

  • Egg 40%
  • Græn fransk­ur Asp­as

Aðal­rétt­ur

  • Gul­ræt­ur 40%
  • Pó­lenta
  • Kantar­ell­ur

Eft­ir­rétt­ur

  • An­an­as
  • Sýrður rjómi 

Úrslit í öll­um keppn­um verða kunn­gjörð í Ikea eft­ir klukk­an 18:00 á laug­ar­dag­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert