Unaðslega góð grafin bleikja

Unaðslega góð grafin bleikja með sítrónugrasfroðu og dukkha sem þið …
Unaðslega góð grafin bleikja með sítrónugrasfroðu og dukkha sem þið eigið eftir að missa ykkur yfir. Ljósmynd/Guðbjörg Einarsdóttir

Ein­ar Hann­es­son og Guðbjörg Ein­ars­dótt­ir, eig­end­ur og stofn­end­ur Eyju vín­stofu & bistro á Ak­ur­eyri, hafa vakið mikla at­hygli fyr­ir vönduð og góð vín ásamt vín­pör­un með mat. Í síðustu viku tók höf­und­ur viðtöl við Ein­ar og Guðbjörg og var svo hepp­in að fá upp­skrift að unaðslega góðum sæl­kera­rétti, bleikju­rétt sem er á nýja mat­seðlin­um hjá þeim og hef­ur slegið í gegn. Þetta er graf­in bleikja með dukkha og sítr­ónugras­froðu sem á sér enga líka.

Heiður­inn af upp­skrift­inni á Jón Arn­ar Ómars­son sem er kokk­ur­inn á staðnum og upp­skrift­in miðast við 12 manns og er því full­kom­in fyr­ir mat­ar­boð. Svo er auðvitað hægt að aðlaga upp­skrift­ina að þeirri stærð sem hent­ar hverju sinni.

Unaðslega góð grafin bleikja

Vista Prenta

Graf­in bleikja með dukkha og sítr­ónugras­froðu

Upp­skrift fyr­ir 12

Graf­in bleikja

  • 250 g salt
  • 250 g syk­ur
  • 1 stk. límóna (börk­ur­inn)
  • 2 stk. bleikju­flök
  • 30 ml sítr­ónu­olía

Aðferð:

  1. Roðflettið bleikj­una.
  2. Blandið salt­inu, sykr­in­um og berk­in­um af límón­unni sam­an og setjið gott lag af því á bakka.
  3. Bleikj­an er síðan lögð ofan á blönd­una á bakk­an­um og svo er það sem eft­ir er af henni skellt yfir bleikj­una.
  4. Leggið bleikj­una í 15 mín­út­ur í blönd­una og skolið hana síðan með köldu vatni.
  5. Pakkið bleikj­unni í loft­tæm­ingar­poka eða eins og við segj­um á ensku „vacc­um“-pakkið bleikj­unni, með sítr­ónu­olí­unni.
  6. Und­ir­búið svo vatnsbað með „sous vide“-tæki og stillið hit­ann á 48°C.
  7. Eldið bleikj­una í 10 mín­út­ur og setjið hana svo beint í kalt vatn til að stöðva eld­un­ina.
  8. Áður en hún er svo bor­in fram er hún brennd að ofan með brenn­ara.

Sýrðar rauðróf­ur

  • 1 stk. rauðrófa
  • 50 g borðedik
  • 50 g syk­ur
  • 50 g vatn

Aðferð:

  1. Skrælið rauðróf­una og skerið þunnt á mandó­líni og setjið í krukku.
  2. Blandið það sem eft­ir er af hrá­efn­un­um sam­an og setjið í pott og hitið þar til syk­ur­inn hef­ur leyst sig upp.
  3. Hellið síðan vökv­an­um yfir rauðróf­urn­ar.
  4. Látið kólna og setjið svo lok á krukk­una.
  5. Hægt er að geyma þetta í marg­ar vik­ur og þessi blanda verður bara betri með tím­an­um.

Dukkha

160 g hesli­hnet­ur

  • 60 g möndl­ur
  • 60 g hvít ses­am­fræ
  • 60 g pist­así­ur
  • 1 msk. fenn­el­fræ
  • 1 tsk. cum­in
  • 1 tsk. kórí­and­er
  • ½ tsk.  cayenne
  • Salt eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Setjið allt sam­an í mat­vinnslu­vél og blandið vel sam­an.

Sítr­ónugras­froða

  • 100 ml olía
  • 1 stk. egg
  • 50 g sítr­ónugras (e. lemong­rass)

Aðferð:

  1. Brjótið sítr­ónugrasið niður í litla bita og setjið ásamt ol­í­unni í pott og hitið.
  2. Setjið svo lok á pott­inn og látið kólna yfir nótt.
  3. Sigtið ol­í­una.
  4. Setjið sam­an olíu og egg í skál og blandið sam­an með töfra­sprota.
  5. Setjið blönd­una síðan sam­an í rjómasprautu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert