Á Instagram-síðu veitingastaðarins Punk var hið alkunna Punk-Instagram tré auglýst til sölu í gær eins og fram kom á matarvef mbl.is í gær. Tréð seldist nánast um leið og það var auglýst til sölu og hefur þetta nafntogaða og mest ljósmyndaða tré landsins eignast nýja eigendur sem eru alsælir með kaupin. Instagram-tréð sem hefur prýtt Punk frá upphafi og hefur sannarlega verið kennileiti staðarins hefur nú eignast nýtt og fallegt heimili.
Nýja heimilið trésins verður Pósthús Mathöll við Pósthússtræti í hjarta miðborgarinnar. Forsvarsmenn Pósthússins segja aðspurðir að það sem hafi heillað þá við við tréð, hafi verið fegurðin og tréð falli mjög vel inn í umhverfi Pósthús Mathöll og rétta lofthæðin sé til staðar og staðurinn sé sniðinn fyrir hið fræga Instagram-tré. Gestir og gangandi munu því geta borið tréð augum með hækkandi sól og tréð mun án efa halda áfram að blómstra og gleðja matargesti á Pósthúsinu með sinni einstöku fegurð og aðdráttarafli.