Í tilefni þess að 5 ár eru liðin frá opnun EIRIKSSON Brasserie var boðið til opnunarteitis á EIRIKSDOTTIR Grósku í Vatnsmýrinni sem var hið glæsilegasta. Opnunarteitið heppnaðist mjög vel og var vel sótt en um það bil 250 manns mættu og fögnuðu afmælinu sem og nýja staðnum. Gestir og gangandi fengu smjörþefinn af því sem koma skal.
Eigendur EIRIKSDOTTIR Gróska eru þeir sömu og EIRIKSSON Brasserie, Laugavegi 77. Þar í framlínu eru veitingahjónin Friðgeir Ingi Eiríksson og Sara Dögg Ólafsdóttir ásamt Sveini Þorra Þorvaldssyni, auk þeirra eru Birgir Már Ragnarsson og Silja Hrund Júlíusdóttir eigendur staðarins. Guðmundur Ragnarsson er einnig eigandi að nýja staðnum EIRIKSDOTTIR en hann er þekktastur undir nafninu Gummi í Laugarás.
„Veitingastaðurinn EIRIKSSON Brasserie opnaði í mars 2019 og var ekki búin að vera opinn í ár þegar faraldurinn mikli skall á. Allt gekk upp hjá okkur með stuðning frá okkar traustu fastakúnnum frá fyrri veitingastaðnum á Hótel Holti sem komu og náðu sér í „take-away“ og keyptu margir jólagjafir fyrir sín fyrirtæki,“ segir Friðgeir og er þakklátur hve vel tókst til þrátt fyrir allar áskoranirnar.
Útlit nýja staðarins í Vatnsmýrinni er í sama stíl og EIRIKSSON Brasserie en hann var hannaður af ítalska hönnunarfyrirtækinu Design group Italia. Fágað og afslappað andrúmsloft er á staðnum og hönnunin er stílhrein og tímalaus.
Veitingastaðurinn EIRIKDOTTIR Gróska hefur nú opnað dyr sínar fyrir gestum og gangandi og er kærkomin viðbót við veitingastaðaflórunna í hjarta borgarinnar og í háskólasamfélaginu.
Mikil gleði ríkti í opnunarteitinu sem haldið var og margt var um manninn. Boðið var upp á kræsingar og smakk á því sem koma skal.