Telma Matthíasdóttir hjá Fitubrennslunni elskar fátt meira en að prufa sig áfram í hollustunni. Á dögunum bakaði hún þetta dýrindis bananabrauð sem er fullt af góðri næringu og bragðast alveg dásamlega vel. Í bananabrauðinu er smá súkkulaði og það gerir brauðið ómótstæðilega gott. Þetta er nýjasta útgáfan hennar en hún á margar uppskriftir af bananabrauði og allar hafa þær slegið í gegn.
Bananabrauð
- 1 egg
- 1 dl sukrin Gold
- 2 bananar, vel þroskaðir
- ¼ bolli mjólk
- 1 tsk. vanilludropar
- 28-30 g Protein 100% pure whey (það má nota hvaða bragð sem er)
- 100 g hveiti
- 100 g instant oats, haframjöls duft
- ¼ tsk. salt
- ½ tsk. matarsódi
- ½ tsk. lyftiduft
- 1 plata 80% Diablo súkkulaði, saxað
Aðferð:
- Byrjið á því að stappa banana og hrærið blautefnum saman við.
- Bætið síðan þurrefnum við.
- Saxið súkkulaði og bætið við.
- Setjið blönduna í klassísk formkökuform.
- Setjið inn í ofn og bakið við 185°C hita í 35-40 mínútur.
- Berið fram ylvolgt og njótið.