Vilhelm opnar pítsastað aftur eftir níu ára hlé

Vilhelm Einarsson dustar rykið af pítsastað sem hann lokaði fyrir …
Vilhelm Einarsson dustar rykið af pítsastað sem hann lokaði fyrir níu árum.

Vil­helm Ein­ars­son stofn­andi Wil­son‘s Pizza ætl­ar að opna nýj­an stað á morg­un eft­ir níu ára fjar­veru. Staður­inn er staðsett­ur í Minig­arðinum í Skútu­vogi. For­saga máls­ins er sú að þann 13. maí 2005 opnaði 20 ára bak­ara­son­ur píts­astað á Ak­ur­eyri. Staður­inn gekk vel og árið 2013 hafði Vil­helm opnað fimm Wil­sons's Pizza staði á höfuðborg­ar­svæðinu. 

„Ég var ekki viss um að þetta væri góð hug­mynd að fara aft­ur í að opna Wil­son´s Pizza. En meðeig­end­ur mín­ir í Minig­arðinum voru al­veg sann­færðir um að það væri tæki­færi í að end­ur­vekja Wil­son‘s,“ seg­ir Vil­helm og seg­ist upp­lifa blendn­ar til­finn­ing­ar. 

„Ég var ung­ur þegar ég stofnaði Wil­son‘s, ekki nema 20 ára og fór al­veg framúr mér í fjölg­un staða sem varð staðnum að falli á sín­um tíma. Um leið og ég elska þenn­an tíma, þá var þetta mjög erfiður tími að þurfa að loka stöðunum sem ég hafði gefið allt mitt og all­an minn tíma,“ seg­ir hann og ját­ar að aðstæður í hans lífi séu allt aðrar í dag. 

„Ég er reynsl­unni rík­ari og veit mun bet­ur hvað ég er að fara út í. Ég hef fengið virki­lega skemmti­leg viðbrögð hjá þeim sem hafa heyrt af þess­um áform­um og ekki laust við að það sé smá fiðring­ur í mag­an­um,“ seg­ir Vil­helm. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert