Í tilefni danskra daga hjá Hagkaup var boðið upp á smurbrauðsnámskeið með Helgu Gabríelu í Hagkauð í Smáralind sem sló rækilega í gegn. Það fylltist fljótt á námskeiðið eftir að það var auglýst enda smurbrauð gríðarlega vinsæl hér á landi.
Danskir dagar hófust þann 18. apríl síðastliðinn og standa til 28. apríl næstkomandi. „Í tilefni þeirra buðum við upp á ýmsa viðburði, meðal annars þetta skemmtilega námskeið með Helgu Gabríelu og við erum afar glöð með viðtökurnar sem námskeiðið fékk. Viðtökurnar á námskeiðinu sýna glöggt hve áhugasamir Íslendingar á þessari frábæru matarhefð Dana, smurbrauðsgerðinni,“ segir Eva Laufey Kjaran markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups.
„Eftir námskeiðið buðum við gestum upp á smurbrauð frá veisluþjónustunni okkar Veisluréttum en smurbrauðin hafa verið mjög vinsæl og mikið um pantanir fyrir ýmis konar tilefni,“ segir Eva Laufey að lokum.