Hér er einn frískandi sumardrykkur sem ber heitið SólGin sem upplagt er að blanda og bjóða upp á í góðra vina hópi. Þessi drykkur var fundinn upp úti í Flatey einn sólríkan dag og lifir enn góðu lífi. Uppskriftina er að finna í bókinni hennar Ingibjargar Ástu Pétursdóttir, Mensu. Ingibjörg Ásta rak eitt sinn Hótel Flatey og deilir með lesendum meðal annars uppskriftum að kræsingum og drykkjum sem hún og fleiri þróuðu úti í Flatey. Þessi drykkur einn sá vinsælasti á hótelbarnum og er ekta sólardrykkur.
SólGin
Fyrir 6
- 2 kg rabarbari, niðurskorinn
- 2 l vatn
- 1 dl hrásykur
- Safi úr ½ sítrónu
- Sítrónusneiðar eða appelsínusneiðar að vild
- Gin eftir smekk
Aðferð:
- Sjóðið saman vatn og sykur,
- Bætið rabarbaranum út í sjóðandi heitt vatnið og látið standa í pottinum yfir nótt.
- Sigtið rabarbarann frá og kreistið sítrónusafa út í blönduna.
- Smakkið löginn til með meiri sítrónusafa eða sykri ef rabarbarinn er of súr.
- Geymið þennan bleika og fallega drykk í kæli og hafið klaka við höndina.
- Bætið gini út í drykkinn ef þannig ber undir og ekki gleyma að setja sítrónusneiðinni sem gefur drykknum nafnið. Þið megið líka nota appelsínusneið.
- Rabarbarastönglar geta skreytt glasið og drykkurinn er bestur ískaldur.