Meistarakokkurinn Sindri verður með pop-up í Varmalandi

Sindri Guðbrandur Sigurðsson meistarakokkur verður með pop-up á veitingastaðnum Calor …
Sindri Guðbrandur Sigurðsson meistarakokkur verður með pop-up á veitingastaðnum Calor á Hótel Varmalandi föstudaginn 3.maí næstkomandi. Samsett mynd

Föstu­dag­inn, 3. maí næst­kom­andi verður marg­verðlaunaði meist­ara­kokk­ur­inn Sindri Guðbrand­ur Sig­urðsson með pop-up á veit­ingastaðnum Cal­or á Hót­el Varmalandi í Borg­ar­f­irði. Fer­ill Sindra í keppn­ismat­reiðslu er glæsi­leg­ur, hann hreppti 3. sætið á Ólymp­íu­leik­un­um í mat­reiðslu með ís­lenska kokka­landsliðinu, hann hef­ur unnið titil­inn, Besti kokk­ur Norður­land­anna, varð Kokk­ur árs­ins árið 2023 og verður full­trúi Íslands í Bocu­se d'Or fræg­ustu mat­reiðslu­keppni heims á næsta ári sem hald­in verður í Lyon í Frakklandi.

Sindri er einnig eig­andi að veisluþjón­ust­unni Flóru ásamt Sig­ur­jóni Braga Geirs­syni, sem einnig er marg­verðlaunaður meist­ara­kokk­ur og þjálf­ar Sindra fyr­ir keppn­ina sem framund­an er úti í Lyon.

Hótel Varmaland er í sveit þar sem kyrrlát er og …
Hót­el Varma­land er í sveit þar sem kyrr­lát er og fal­legt, á skjól­sæl­um stað á milli fal­legra kletta­bletta sem á sér fáa líka. Ljós­mynd/​Hót­el Varma­land

Frelsi til að gera það sem okk­ur lang­ar til

Það stytt­ist óðum í keppn­ina úti í Lyon og það er ef­laust nóg að gera hjá þér fram að henni. Ertu byrjaður að æfa fyr­ir kom­andi keppni?

„Þessa dag­ana er ég að vinna, en ein­beit­ing­in fer á fullt á Bocu­se d'Or eft­ir sum­arið.“

Nú verður þú með pop-up á Hót­el Varmalandi á föstu­dag­inn næst­kom­andi, er það liður í und­ir­bún­ingn­um fyr­ir keppn­ina?

„Nei, þetta er verk­efni sem að ég og teymið á veit­ingastaðnum á Hót­el Varmalandi unn­um í sam­ein­ingu. Það er ávallt gam­an þegar að veit­ingastaðir eru til í að leyfa okk­ur kokk­un­um að njóta okk­ar á viðburðum eins og þess­um. Þá fáum við ákveðið frelsi og tæki­færi til að gera það sem okk­ur lang­ar til í mat­ar­gerðinni.“

Var einu sinni yfir­kokk­ur­inn hans Elm­ars

Af hverju Hót­el Varma­land, áttu ein­hverj­ar teng­ing­ar þangað?

„Ég var einu sinni yfir­kokk­ur­inn hans Elm­ars Daða Sæv­ars­son­ar sem er yfir­kokk­ur þar núna. Okk­ur datt í hug að vera sam­an með pop-up og lét­um bara vaða, sem er ótrú­lega skemmti­legt.“

Hvað ætlið þið Elm­ar að bjóða mat­ar­gest­um upp á?

„Við ætl­um að bjóða upp á eft­ir­minni­lega mat­ar­upp­lif­un, fimm rétta mat­seðil með sam­blandi af hvít­um og bleik­um fisk, nauta­kjöti ásamt eft­ir­rétti. Síðan verður boðið upp á vín­pör­un fyr­ir þá sem vilja.“

Eig­um við von á því að sjá þig vera á fleiri stöðum um land allt með pop-up?

„Þetta er eina pop-up mat­ar­upp­lif­un sem er á döf­inni eins og er en ég er alltaf klár í að taka þátt í fleir­um. Það er mjög gam­an að fá tæki­færi til að koma með sinn mat inn á ólíka staði. Þá kynn­ist ég fleira fólki og læri af öðrum. Ég er orðinn mjög spennt­ur fyr­ir föstu­deg­in­um og hlakka mikið til að mat­reiða með Elm­ari fyr­ir mat­ar­gesti á Hót­el Varmalandi. Von­ast til að sjá sem flesta í Borg­ar­f­irðinum,“ seg­ir Sindri að lok­um.

Hægt er að sjá nán­ara um viðburðinn hér.

Veitingastaður hótelsins, Calor, er á efstu hæð með stórbrotið útsýni …
Veit­ingastaður hót­els­ins, Cal­or, er á efstu hæð með stór­brotið út­sýni til allra átta. Ljós­mynd/​Hót­el Varma­land
Stórfenglegt útsýni sem matargestir fá að njóta meðan á matarupplifuninni …
Stór­feng­legt út­sýni sem mat­ar­gest­ir fá að njóta meðan á mat­ar­upp­lif­un­inni stend­ur. Ljós­mynd/​Hót­el Varma­land
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert