Hollustupítsa með burrata og parmaskinku

Girnilegar og hollar pítsur sem tekur örskamma stund að útbúa.
Girnilegar og hollar pítsur sem tekur örskamma stund að útbúa. Samsett mynd

Föstu­dag­ar eru pítsu­dag­ar hjá mörg­um fjöl­skyld­um og nú er komið að upp­skrift mat­ar­vefs­ins fyr­ir föstu­dagspít­suna sem les­end­ur geta prófað og máta sig við.

Að þessu sinni er það holl­ustupítsa með parma­skinku og burrata osti og í pít­sa­gerðina að þessu sinni notaði ég líf­ræna pítsu­botna frá Ebbu Guðnýju og Kaju sem eru al­veg frá­bær­ir. Þeir eru glút­en­laus­ir og líf­ræn­ir og full­komið í grípa í þá þegar holla pítsu skal gera á skömm­um tíma.

Pítsu­botn­arn­ir fást meðal ann­ars í Hag­kaup og eru seld­ir frosn­ir, tveir botn­ar í hverri pakkn­ingu. Botn­arn­ir eru for­bakaðir en það upp­lagt að for­baka þá aft­ur ef þið viljið hafa þá stökka.

Burrata-ost­ur er al­gjört sæl­gæti að njóta á pítsu og hægt er að leika sér með meðlætið, eft­ir því sem ykk­ur lang­ar til. Það er líka gott að setja heima­gert pestó ofan á burrata ost­inn á pítsunni.

Burrata osturinn er sælgæti að njóta og þessir pítsabotnar eru …
Burrata ost­ur­inn er sæl­gæti að njóta og þess­ir pítsa­botn­ar eru snilld. Ljós­mynd/​Sjöfn

Hollustupítsa með burrata og parmaskinku

Vista Prenta

Burrata og parma­skinku pítsa á holla mát­ann

Fyr­ir 2

  • 1 pk. Líf­ræn­ir pítsu­botn­ar frá Ebbu Guðnýju og Kaju (2 stk.)
  • 1 stór niðursuðudós Mutti pít­saasósa arom­atica
  • 1 pk. rif­inn mozzar­ella­ost­ur
  • 2 stk. burrata ost­ur
  • 1 pk. parma­skinka
  • 1 pk. blandað sal­at eða kletta­sal­at
  • Fersk­ar sprett­ur ef vill

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita ofn­inn í 200°C með blæstri og for­bakið frosnu botn­ana í 5 til 10 mín­út­ur.
  2. Takið botn­ana út og setjið ofan á þá pítsasósu og mozzar­ella­ost eft­ir smekk, setjið síðan aft­ur inn ofn og bakið þar til ost­ur­inn er bráðinn.
  3. Setjið parma­skinku á botn­ana eft­ir smekk, síðan sal­atið og loks burrata ost á sitt hvorn botn­inn í miðjuna og opnið burrata ost­inn. Upp­lagt er að strá yfir pítsurn­ar fersk­um sprett­um eft­ir smekk eða ferskri basilíku.
  4. Berið fram og njótið. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert