Þessi ómótstæðilega góða appelsínukaka á vel við með sunnudagskaffinu. Uppskriftin er einföld og kakan er mjúk og góð með glassúr og minnir á kökur sjöunda áratugarins. Síðan má skreyta hana að vild og leyfa hugarfluginu að ráða för.
Appelsínukaka með glassúr
- 250 g sykur
- 175 g smjör
- 3 egg
- ½ dl mjólk
- 300 g hveiti
- 1 tsk. lyftiduft
- Appelsínubörkur af einni appelsínu
- 200 g 70% dökkt súkkulaði
- ½ -1 tsk. vanilludropar
Aðferð:
- Byrjið á því að hita ofninn í 180°C.
- Hrærið saman sykur og smjör og setjið síðan eggin út í eitt í einu. Skafið vel niður á milli.
- Hellið mjólk saman við blönduna og bætið loks við þurrefnunum.
- Hreinsið appelsínuna og rifið niður börkinn.
- Skerið niður súkkulaðið og blandið saman við deigið ásamt appelsínuberkinum og vanilludropum.
- Setjið deigið í meðalstórt smurt kökuform, til dæmis kringlótt form með gati í miðjunni.
- Setjið inn í ofn og bakið í um það bil 50 mínútur.
Glassúr
- 200 g flórsykur
- 2 msk. appelsínusafi
- ½ msk. sítrónusafi
Aðferð:
- Sigtið flórsykurinn og blandið söfunum saman við.
- Bætið við safa ef ykkur finnst glassúrinn vera of þykkur, þið veljið þykktina sem ykkur þykir best.
- Þegar kakan hefur kólnað hellið þá glassúrnum varlega yfir og látið leka hægt niður.
- Skreytið að vild, t.d. með rifnum appelsínuberki og ætisblómum.