Lemon-teymið bauð í smakkteiti á dögunum þar sem boðið var upp á nýja vegansamloku, Vegancado. Samlokan var unnin í samvinnu við Elínu Kristínu Guðmundsdóttur, alla jafna kölluð Ella Stína, eiganda Ella Stína Vegan. En Ella Stína útbýr og selur í verslanir veganvörur undir merkinu Ella Stína Vegan.
„Samlokan inniheldur vegan kjúllabita, avókadó, tómata, hvítlauks aioli og pestó. Hún er stökk, fersk og lætur bragðlaukana dansa í munninum,“ segir Gurrý Indriðadóttir markaðsstjóri Lemon. Hugmyndin að samlokunni kemur frá einni vinsælustu samlokunni á Lemon, Chickencado.
Ella er svo mikill snillingur að hún var ekki lengi að finna út hvernig við gætum gert Chickencado að vegan samloku. Vegan kjúllabitarnir sem eru á samlokunni eru unnir úr pea prótíni sem er unnið úr edamame baunum sem gerir þá næringarríka af prótíni, segir Gurrý enn fremur.
Að sögn Ellu Stínu þá kemur hún á Lemon næstum því á hverjum degi, elskar að fá sér hollustu í glasi, yfirleitt fær hún sér Beetlejuice og nú getur hún bætt við Vegancado og fengið sér kombó sem bráðnar í munninum og gefur henni orku og gott jafnvægi.
Að sögn gesta í teitinu þá smakkaðist samlokan mjög vel, þeir hreinlega elskuðu samlokuna. Áhugavert var líka að sjá að þeir sem eru ekki vegan fannst hún mjög góð og gæti vel hugsað sér að panta hana næst.