Salat vikunnar: Andasalat með mandarínum og geitarosti

Brakandi ferskt og bragðgott andasalat fyrir vandláta er salat vikunnar …
Brakandi ferskt og bragðgott andasalat fyrir vandláta er salat vikunnar að þessu sinni. Ljósmynd/Sjöfn

Sal­at vik­unn­ar á mat­ar­vefn­um að þessu sinni kem­ur úr smiðju grein­ar­höf­und­ar, anda­sal­at með manda­rín­um og geit­arosti sem ávallt slær í gegn á mínu heim­ili. Hægt er að leika sér með inni­haldið en ég er iðin við að breyta inni­hald­inu í sal­at­inu hverju sinni. Stund­um eru í sal­at­inu harðsoðin egg, ástríðuávöxt­ur, granatepla­fræ og perlu­lauk­ur, eða bara það sem ég á til í ís­skápn­um hverju sinni sem pass­ar með önd. Anda­sal­at geri ég gjarn­an eft­ir að hafa verið með önd í mat­inn, hvort sem það hafa verið anda­læri eða anda­bring­ur og nýti af­gang­ana í sal­atið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert