Kjörið tækifæri til að heimsækja Húsó

Hússtjórnarskólinn er í reisulegu og fallegu húsi á Sólvallagötu sem …
Hússtjórnarskólinn er í reisulegu og fallegu húsi á Sólvallagötu sem er mikið prýði fyrir götumyndina. Þarna gerast töfrarnir í eldhúsinu. Ljósmynd/Hússtjórnarskólinn

Síðastliðnar vik­ur og mánuði hafa les­end­ur mat­ar­vefs­ mbl.is fengið að njóta upp­skrifta á hverj­um laug­ar­degi sem koma úr hinu leynd­ar­dóms­fulla eld­húsi í Hús­stjórn­ar­skól­an­um. Skóla­meist­ar­inn Marta María Arn­ars­dótt­ir þar á bæ hef­ur svipt hul­unni af nokkr­um vel völd­um rétt­um sem eiga sér sögu og hafa fylgt Hús­stjórn­ar­skól­an­um gegn­um tíðina. Upp­skrift­irn­ar hafa slegið í gegn hjá les­end­um og njóta mik­illa vin­sælda.

Kaffi­hlaðborð með heitu súkkulaði og öllu til­heyr­andi

Laug­ar­dag­inn 11. maí næst­kom­andi milli klukk­an 13:30 og 17:00 verður opið hús í Hús­stjórn­ar­skól­an­um, sem alla jafna er kallaður Húsó, að Sól­valla­götu 12 í hjarta borg­ar­inn­ar. Gest­ir munu geta að litið á hand­verks­sýn­ingu nem­enda ásamt því að gæða sér á kaffi­hlaðborði með heitu súkkulaði og öllu til­heyr­andi sem nem­end­ur standa fyr­ir. Einnig verður hægt að kaupa heima­gerðar sult­ur, lag­kök­ur, smá­kök­ur, ný­steikt­ar klein­ur, hitaplatta, hár­t­eygj­ur og handa­vinnu­poka svo fátt sé nefnt. Þarna er á ferð kær­komið tæki­færi til að heim­sækja Húsó en húsið er ein­stak­lega reisu­legt og fal­legt og hí­býl­in sögu­leg.

Á slóðir Húsó

Þætt­irn­ir Húsó voru á skján­um á RÚV í vet­ur og nutu einnig mik­illa vin­sælda. Tök­urn­ar fóru að mestu leyti fram í skól­an­um og gam­an verður líka fyr­ir gesti og gang­andi að koma inn í leik­mynd­ina úr þátt­un­um og end­urupp­lifa stemn­ing­una úr Húsó.

Hægt er að lesa nán­ar um viðburðinn hér.

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert