Hér er á ferðinni chimichurri-sósa af betri gerðinni og uppskriftarhöfundurinn er Davíð Örn Hákonarson, yfirkokkur og einn eigenda Skreiðar. Þessi sósa er fersk og ótrúlega góð með mörgu, eins og steikum, eggjum, sterkum pylsum og grilluðum mat svo fátt sé nefnt.
Chimichurri-sósa
- ½ pakki VAXA-kóríander
- 2 box VAXA-steinselja
- 1 grein rósmarín
- 6 greinar óreganó
- ½ grænn eldpipar
- ½ geiri hvítlaukur
- 3 msk. rauðvínsedik
- 2 dl OMED-ólífuolía – fæst á Skreið
- Salt
Aðferð:
- Setjið öll hráefnin saman í blandara og smakkið til með salti.
- Hægt er að nota chimichurri-sósu með ótalmörgu, t.d. steikum, eggjum eða chorizo-pylsum eins og gert er á Skreið.