Þessi kóríandersósa er í miklu uppáhaldi hjá mér og hægt er að para sósuna með næstum öllu sem hugurinn girnist. Hér er á ferðinni kóríandersósan að bestu gerð.
Hún er fullkomin með hvers kyns salötum, fiskréttum, falafel, kjúklingi, mexíkóskum mat, grænmetisréttum og fullkomin í taco og fajtasrétti. Síðan er hún frábær með grilluðum mat. Til að mynda prófaði ég sósuna með túnfisksteik, algjört sælgæti að njóta og líka með nautalundinni. Í þessari sósu eru engar mjólkurvörur né olíur, hún er glúten- og sykurlaus og án soja. Þessi sósa getur ekki klikkað.
Sósan passar vel með mexíkóskum réttum eins og taco og fatjas.
Ljósmynd/Sjöfn
Kóríandersósa Sjafnar
- ¾ bolli kasjúhnetur (lífrænar enn betra)
- ½ bolli ferskt kóríander
- 1 stk. hvítlaukur, marinn (þessi í körfunum)
- ½ bolli vatn, má setja meira ef þurfa þykir
- 3 msk. ferskur límónusafi, nýkreistur úr límónu
- 2 -3 msk. avókadó
- ½ tsk. sjávarsalt
- ½ tsk. hvítlauksduft
Aðferð:
- Byrjið á því að setja kasjúhneturnar í skál og hellið sjóðandi vatni yfir þær. Passið að vatnið nái yfir allar hneturnar.
- Látið liggja í vatninu í klukkutíma eða í volgu vatni yfir nótt.
- Hreinsið hneturnar og hellið vatninu af.
- Bætið svo öllu hnetunum og öðru hráefni í blandara.
- Blandið mjög vel þannig að sósan fái falleg áferð.
- Ef hneturnar eru ekki að blandast nógu vel saman að ykkar smekk þá má bæta örlitlu af vatni saman við. Sósan á verða falleg græn á lítinn og mjúkri áferð.
- Berið kóríandersósuna fram í fallegri skál eða kokteilglasi og skreytið með kóríanderblöðum.