Ef þú ert fyrir kleinuhringi, súkkulaði og Nutella verður þú að prófa þessa.
Ljósmynd/Snorri Guðmundsson
Hér er komin sannkölluð veisla fyrir Nutella- og súkkulaðiunnendur í boði Snorra Guðmundssonar matgæðings hjá Matur og myndir. Uppskriftin er sáraeinföld en sjúklega góðir bakaðir Nutella-kleinuhringir gera alla daga betri að sögn Snorra.
Nutella-kleinuhringir
10-12 stykki
- 140 g hveiti
- 25 g kakóduft
- 70 g sykur
- 1/2 tsk. lyftiduft
- 1/2 tsk. matarsódi
- 1 vanillustöng
- 30 g smjör
- 80 ml mjólk
- 60 ml jógúrt
- 1 egg
- 4 msk. Nutella
Aðferð:
- Forhitið ofn í 175°C með yfir- og undirhita.
- Pískið saman hveiti, kakóduft, sykur, salt, lyftiduft og matarsóda.
- Skerið vanillustöng í tvennt og skafið fræin úr henni. Bræðið smjör við. Pískið saman, smjör, mjólk, jógúrt, egg og vanillufræ.
- Pískið blautblöndunni saman við þurrefnablönduna þar til allt hefur samlagast (varist að ofhræra blönduna).
- Færið deigið í sprautupoka eða smellupoka og klippið gat í eitt hornið svo auðvelt sé að sprauta út deiginu.
- Spreyið tvö kleinuhringjaform með matarolíu.
- Fyllið hvert mót hálfa leið upp af deigi. Dreifið Nutella í nokkrum doppum yfir deigið og hrærið aðeins í því með t.d. tannstöngli svo það dreifist aðeins betur um deigið.
- Bakið í miðjum ofni í 9-10 mínútur og látið kólna í smástund áður en kleinuhringirnir eru fjarlægðir úr mótinu.
Gljáinn
- 3 msk. Nutella
- 10 g flórsykur
- 2-4 msk. nýmjólk
- Súkkulaðispænir til skrauts
Aðferð:
- Pískið saman Nutella, flórsykur og mjólk eftir þörfum þar til gljáinn er hæfilega þykkur svo hægt sé að dýfa kleinuhringjunum í hann.
- Gott er að hita gljáann aðeins áður en hann er notaður því þá mun hann verða aðeins stífari þegar hann þornar.
- Skreytið kleinuhringina með súkkulaðispæni eftir smekk um leið og búið er að dýfa þeim í gljáann.
- Berið fram og njótið.