Þú getur gert „Subway“ kjötbollubátinn heima

Ristaðir „Subway“ kjötbollubátar með heimagerðri sósu og bræddum osti.
Ristaðir „Subway“ kjötbollubátar með heimagerðri sósu og bræddum osti. Ljósmynd/Valla Gröndal

Val­gerður Gréta Grön­dal mat­ar­blogg­ari, alla jafna kölluð Valla Grön­dal, er búin að gera sína eig­in upp­skrift af hinum sí­vin­sæla „Su­bway“ bát með kjöt­boll­um en hann er ekki leng­ur fá­an­leg­ur á Íslandi. Hún er meira segja kom­in með upp­skrift að „Su­bway“ brauði sem er full­komið með kjöt­boll­un­um.

„Það vill svo til að ég vann á Su­bway þegar ég var ung­ling­ur og í þá daga var hægt að fá kjöt­boll­ur í marin­arasósu á bát­inn sinn. Ekki löngu seinna voru þær ekki leng­ur í boði og síðan þá ekki hægt að kaupa kjöt­bollu­bát hér­lend­is að mér vit­andi. Ég viður­kenni að eft­ir þessa starfs­reynslu hef ég ekki verið brjálaður Su­bway aðdá­andi enda kannski borðað Su­bway fyr­ir lífstíð á þeim tíma. Dótt­ir mín gæti hins veg­ar lifað á þess­um sam­lok­um og hef­ur spurt nokkr­um sinn­um hvers vegna það sé ekki hægt að fá kjöt­boll­ur á bát­inn sinn á Íslandi eins og ann­arsstaðar í heim­in­um,“ seg­ir Valla.

Valla tók því til þess ráðs að reyna að gera kjöt­bollu­bát­inn og fara alla leið. Aðspurð seg­ir hún að þetta taki sinn tíma en það sé al­veg þess virði.

Hér er á ferðinni upp­skrift­inni henn­ar Völlu að ristuðum „Su­bway“ bát­um með kjöt­boll­um, heima­gerðri sósu og brædd­um osti sem aðdá­end­ur báts­ins eiga eft­ir að missa sig yfir.

View this post on In­sta­gram

A post shared by Valla Grön­dal (@valla­grondal)

Þú getur gert „Subway“ kjötbollubátinn heima

Vista Prenta

Su­bway“ brauð

  • 400 ml vatn, um 37°C heitt
  • 2 tsk. þurr­ger
  • 2 ½ tsk. syk­ur
  • 1 ½ tsk. himalaya salt eða fín­malað sjáv­ar­salt
  • 3 msk. olía
  • 600 g hveiti (rautt venju­legt, ekki brauðhveiti) + meira ef deigið er of blautt.
  • 1-2 tsk. smjör 

Aðferð:

  1. Setjið vatn, ½ tsk. af sykr­in­um og ger í hræri­véla­skál og látið standa í 5 mín­út­ur.
  2. Bætið hveiti, rest­inni af sykr­in­um, salti og olíu sam­an við og hnoðið ró­lega í 5-6 mín­út­ur. Ef deigið er of blautt setjið þá 1 msk. af hveiti út í í einu þar til deigið hætt­ir að fest­ast við skál­ina en er samt vel rakt. 
  3. Vigtið deigið og fáið út heild­arþyngd. Deilið deig­inu í 5 jafna hluta og mótið kúl­ur. Setjið bök­un­ar­papp­ír á plötu, úðið yfir með ol­íu­spreyi. Setjið kúl­urn­ar á plöt­una með góðu bili á milli. Spreyið létt yfir kúl­urn­ar með ol­íu­sprey­inu og hyljið með plast­filmu. Hefið í 1 klukku­stund.
  4. Takið einn hluta af deig­inu og rúllið út í fer­hyrn­ing sem er um 20x20cm. Rúllið því upp eins og ef þetta væri kanil­snúðadeig. Rúllið þá deig­inu aðeins fram og aft­ur þar til saum­ur­inn er al­veg fast­ur og klípið deigið sam­an í end­un­um. Þá ætti deigrúll­an að ná ca. 24cm.
  5. End­ur­takið með hinar kúl­urn­ar og gott að hafa þær sem jafn­ast­ar út­lits. Þá er gott að horfa á fyrstu deigrúll­una og hafa hana til hliðsjón­ar.
  6. Leggið rúll­urn­ar eða deig­lengj­urn­ar á bök­un­ar­plöt­una. Mér finnst gott ef þær snert­ast þegar þær hef­ast og bak­ast en það er líka gott að hafa gott bil á milli, bæði betra! Ef þið setjið 5 rúll­ur á plötu munu þær snert­ast svo kannski er gott að miða við 2 og svo 3 á plötu.
  7. Úðið aðeins yfir deigið með ol­íu­spreyi, bara rétt aðeins svo plast­film­an sem þið þurfið að leggja yfir fest­ist ekki við. Hefið á borði í 2 klukku­stund­ir. Það er freist­andi að stytta tím­ann en það er al­veg þess virði að bíða svona lengi, trúið mér! Fínt að fara í sund eða eitt­hvað á meðan. Þegar brauðin eru full­hæf­ur eru þau um 30cm að lengd og líkj­ast mjög klass­ísku Su­bway brauðunum.
  8. Hitið ofn­inn í 190°C und­ir og yf­ir­hita. Setjið lítið form með vatni á ofn­grind svo það mynd­ist gufa í ofn­in­um.
  9. Úðið brauðin með vatni og setjið þau í ofn­inn. Eft­ir 10 mín­út­ur takið þið út vatnið og bakið áfram í 10-12 mín­út­ur.
  10. Takið brauðin út og penslið ör­litlu smjöri yfir þau. Færið þau á grind og leggið hreint viska­stykki yfir þau. Leyfið þeim að kólna og njótið með því áleggi sem ykk­ur hugn­ast best.

Kjöt­boll­urn­ar

  • 500 g nauta­hakk (eða 50/​50 nauta og grísa)
  • 1 meðal­stór lauk­ur, smátt saxaður
  • 3 hvít­lauks­geir­ar
  • ½ bolli brauðrasp
  • 1 stórt egg
  • 4 msk. rif­inn par­mes­anost­ur
  • 1 msk. þurrkuð stein­selja
  • 2 tsk. fín­malað sjáv­ar­salt eða himalaya salt
  • 1 tsk. nýmalaður svart­ur pip­ar 

Aðferð:

  1. Setjið álp­app­ír á bök­un­ar­plötu og setjið til hliðar. Hitið ofn­inn í 200°C blást­ur.
  2. Blandið öllu sam­an í skál og hnoðið sam­an með hönd­un­um þar til allt er vel blandað sam­an, var­ist þó að hnoða of lengi því þá verða kjöt­boll­urn­ar eins og kjöt­fars­boll­ur og það vilj­um við alls ekki.
  3. Mótið boll­urn­ar með hönd­un­um, ég vigtaði hverja um 50 g.
  4. Setjið boll­urn­ar á bök­un­ar­plöt­una og þegar þær eru all­ar komn­ar bakið þær í ofn­in­um í 20 mín­út­ur.

Kjöt­bollusós­an (Marin­ara)

  • 1 msk. ólífu­olía
  • 1 meðal­stór lauk­ur, smátt saxaður
  • 3 hvít­lauks­geir­ar, smátt saxaðir
  • 160 g tóm­at­púrra
  • 2 dós­ir saxaðir tóm­at­ar
  • 1 ½ msk. þurrkað or­eg­anó
  • 1 msk. sjáv­ar­salt
  • 1 tsk. nýmalaður svart­ur pip­ar
  • 2 tsk. syk­ur
  • Fersk basilíka, um 2 msk. söxuð

Aðferð:

  1. Saxið lauk­inn og hvít­lauk­inn en blandið ekki sam­an.
  2. Hitið ol­í­una á meðal­hita í meðal­stór­um potti og setjið lauk­inn út í. Steikið í nokkr­ar mín­út­ur þar til hann verður glær, var­ist að brenna hann.
  3. Setjið hvít­lauk­inn og tóm­at­púrr­una sam­an við og hrærið sam­an við lauk­inn.
  4. Bætið niðursoðnu tómöt­un­um sam­an við ásamt krydd­inu en geymið basilík­una.
  5. Látið sós­una malla á lág­um hita í 20 mín­út­ur.
  6. Setjið basilík­una sam­an við og takið pott­inn af hell­unni.

Sam­setn­ing bát­anna

  • 5 heima­gerð Su­bway brauð
  • Kjöt­bollusósa
  • Kjöt­boll­ur
  • Rif­inn ost­ur eft­ir smekk
  • Fersk basilíka
  • Rif­inn par­mesanost­ur

Aðferð:

  1. Útbúið brauðin sam­kvæmt upp­skrift.
  2. Gerið sós­una og kjöt­boll­urn­ar.
  3. Hafið áfram kveikt á ofn­in­um á 200°C.
  4. Skerið brauðin eft­ir endi­löngu í miðjunni og kjöt­boll­urn­ar í tvennt
  5. Setjið sós­una í raufarn­ar og raðið kjöt­boll­un­um ofan á sós­una.
  6. Smyrjið sósu yfir kjöt­boll­urn­ar og toppið með rifn­um osti.
  7. Bakið í ofn­in­um þar til ost­ur­inn er far­inn að gyll­ast.
  8. Takið bát­ana út og raspið par­mesanost yfir. Toppið með ferskri basilíku ef vill.
  9. Berið fram og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert