Klassísk rækjubrauðterta sem bragðast dásamlega vel

Klassísk rækjubrauðterta fyrir þá sem elska brauðtertur.
Klassísk rækjubrauðterta fyrir þá sem elska brauðtertur. Ljósmynd/Sjöfn

Brauðtert­ur er þjóðlegt fyr­ir­bæri á Íslandi og fátt er betra þegar veislu skal gjöra en fá ljúf­fenga brauðtertu sem minn­ir á gamla góða tím­ann. Sú brauðterta sem mér finnst allra best er klass­ísk rækju­brauðterta eins og amma mín heit­in gerði ávallt og ég skreyti hana á stíl­hrein­an og ein­fald­an hátt. Ekki of­gnótt af neinu. Þessa brauðtertu ger­ir ég nokkr­um sinn­um á ári við sér­stök til­efni og hún minn­ir ávallt á kaffi­boðin eins og þau voru forðum. Á brauðtert­una set ég klass­ískt rækju­sal­at án flækj­u­stigs og síðan skreyti ég hana á ein­fald­an máta þar sem bragðið fær að njóta sín.

Inni­held­ur ein­ung­is egg frá frjáls­um hæn­um

Mér finnst líka skipta máli hvernig maj­ónesið bragðast og í dag er ég búin að finna mitt upp­á­halds­majónes sem var ekki til hér áður fyrr en þetta er maj­ónesið frá Heinz. Það bragðast svo vel, áferðin er létt­ari og fal­legri og síðan er það ekki eins óhollt og sagt hef­ur verið um maj­ónes al­mennt. Þegar ég sé vörumerkið Heinz dett­ur mér fyrst bakaðar baun­ir eða tóm­atsósa í hug. Um tíma var talið að maj­ónes væri síður en svo heilsu­sam­leg fæða en ef við skoðum þetta nán­ar þá eru helstu inni­halds­efni í maj­ónesi olía og egg og í dag myndu þessi hrá­efni alls ekki flokk­ast sem óholl mat­vara. Gam­an er að segja frá því að Heinz-maj­ónesið inni­held­ur ein­ung­is egg frá frjáls­um hæn­um og kom það mér á óvart. Það er al­gjör­lega án litar­efna, bragðefna eða ónátt­úru­legra þykk­ing­ar­efna og stuðlar þannig að því að máltíðin verði sem hrein­ust. Maj­ónes er hægt að notað á fjöl­breytt­an máta og það er þeim kost­um gætt að geta gert góða máltíð enn betri. Ykk­ur að segja þá nota ég þetta maj­ónes þegar ég geri sam­lok­ur, salöt, heima­lagaða kokteilsósu svo fátt sé nefnt.

Hér er síðan mín upp­skrift að hinni klass­ísku rækju­brauðtertu sem bragðast al­veg dá­sam­lega vel og er í miklu upp­á­haldi hjá mínu fólki.

Klassísk rækjubrauðterta sem bragðast dásamlega vel

Vista Prenta

Klass­ísk rækju­brauðterta að hætti Sjafn­ar

  • 400 g rækj­ur, þídd­ar (ég vel fal­leg­ar rækj­ur og passa að þær séu ekki of smá­ar)
  • 5 líf­ræn egg, harðsoðin og skor­in í eggja­sker­ara á báða vegu.
  • 400- 500 g Heinz-maj­ónes
  • Örlítið sinn­ep
  • Hvít­ur pip­ar eft­ir smekk
  • Sítr­ónusafi úr ferskri líf­rænni sítr­ónu, gott er að dreypa smá­veg­is af sítr­ónusafa á rækj­urn­ar
  • Brauðtertu­brauð, skorið langs­um

Til skreyt­inga

  • 1-2 msk. 18% sýrður rjómi (ef vill)
  • Heinz-maj­ónes eft­ir þörf­um
  • 1-2 líf­ræn­ar sítr­ón­ur, skerið í fal­leg­ar sneiðar
  • ½ ag­úrka, skerið í fal­leg­ar sneiðar
  • 1 búnt fersk stein­selja
  • 1-2 harðsoðin egg ef vill, skor­in í sneiðar í eggja­sker­ara

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hræra sam­an Heinz-maj­ónes og sinn­ep eft­ir smekk, ekki setja mikið sinn­ep.
  2. Piprið eft­ir smekk.
  3. Setjið næst egg­in út í.
  4. Kreistið ör­litl­um sítr­ónusafa úr ferskri sítr­ónu yfir rækj­urn­ar og bætið þeim síðan í blönd­una.
  5. Gott er að setja rækju­sal­atið á brauðtertu­brauðið sól­ar­hring fyr­ir notk­un en það er ekki nauðsyn­legt. Það er líka hægt að gera rækju­sal­atið dag­inn fyr­ir notk­un og geyma í kæli í sól­ar­hring.

Sam­setn­ing og skreyt­ing

  1. Finnið til fal­legt viðarbretti eða ílang­an disk sem pass­ar fyr­ir brauðtert­una.
  2. Takið brauðtertu­brauðið og skerið end­ana af á snyrti­leg­an hátt. Gott að miða við að vera með fjög­urra hæða brauðtertu, nota fjög­ur lög.
  3. Leggið fyrsta lagið á brettið eða disk­inn sem þið ætlið að bera brauðtert­una fram á.
  4. Setjið rækju­sal­atið á milli laga brauðtert­unn­ar þar til þið eruð kom­in upp á fjórðu hæð.
  5. Hrærið sam­an sýrðum rjóma og maj­ónesi til að smyrja brauðtert­una með. Marg­ir segja að hvíti lit­ur­inn á maj­ónes­inu hald­ist bet­ur ef smá af sýrðum rjóma er blandað við maj­ónesið. Það er ekki nauðsyn­legt að gera þetta.
  6. Smyrjið alla brauðtert­una, ofan á og all­ar hliðarn­ar.
  7. Skreytið síðan með ag­úrku- og sítr­ónusneiðum ofan á og rifið niður stein­selju eft­ir smekk og setjið með fram ag­úrku- og sítr­ónusneiðunum ofan á.
  8. Skreytið hliðarn­ar með ag­úrkusneiðum, má líka skreyta hliðarn­ar með eggj­um, skor­in í sneiðar í eggja­skera.
  9. Skreytið loks brettið eða disk­inn sem brauðtert­an er á með ferskri stein­selju. Stein­selja, sítr­óna og egg passa mjög vel með rækj­um, því er upp­lagt að skreyta með þessu hrá­efni.
  10. Berið fram og njótið í góðra vina hópi.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert
Loka