Á dögunum opnaði nýr veitingastaður á Hellissandi sem ber heitið Mural. Hann staðsettur á Hótel Hellissandi og er í eigu Arctic Adventures sem er partur af Adventure Hotel keðju félagsins.
Arctic Adventures er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi og reka 4 hótel víðs vegar um landið til að bæta upplifun og þjónustu til viðskiptavina með greiðu aðgengi að hótelherbergjum.
Adam segir að opnun staðarins sé í raun draumur sem loksins hefur ræst. „Við höfum stefnt að því frá því að við tókum við rekstri hótelsins að opna veitingastað á hótelinu til að efla þjónustu á svæðinu fyrir ferðafólk og sveitunga,“ segir Adam Petrovszki hótelstjóri.
Þegar Adam er spurður út í tilurð nafnsins á staðnum segir hann að Hellissandur sé þekktur fyrir vegglist utanhúss og iðandi listalíf. „Veitingastaðurinn hefur fengið
nafnið Mural sem er tilvísun í vegglistina á staðnum. Til gamans má geta er vegg listakonan Karen Ýr að undirbúa verk sem verður staðsett á byggingunni okkar í sumar,“ segir Adam.
Mikil ánægjan er meðal fólks með opnun veitingastaðarins. „Fólkið á svæðinu hefur tekið mjög vel í þetta og eru spennt að fá nýjan veitingastað á Hellissand. Okkur finnst mikilvægt að Snæfellingar viti af þjónustunni og bjóðum við þá sérstaklega velkomna á nýja staðinn okkar.“
Hvernig myndu þið lýsa áherslunum í matargerðinni/matseðlinum?
„Við matreiðsluna eru notuð staðbundin hráefni og við bjóðum meðal annars upp á hefðbundinn íslenskan mat eins og kjötsúpu svo erum við einnig með fisk dagsins og íslenska lambið ásamt mörgu öðrum þjóðlegum réttum í bland við annað.“
Veitingastaðurinn Mural verður opinn alla morgna en þá er morgunverðarhlaðborð bæði fyrir hótelgesti og aðra sem hafa áhuga á. Síðan verður veitingastaðurinn opinn frá klukkan 17:00 alla daga. Staðurinn verður opinn allt árið sem er mikið fagnaðarefni fyrir Snæfellinga að sögn Adams.