Vöffluuppskriftin hans Baldurs kosningaleyndarmál

Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi segir að uppskriftin að vöfflunum á kosningaskrifstofunni …
Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi segir að uppskriftin að vöfflunum á kosningaskrifstofunni sé kosningaleyndarmál. Samsett mynd

Þessa dag­ana kepp­ast for­setafram­bjóðend­urn­ir við að bjóða upp á besta kosn­ingakaffið og all­ir eiga þeir sitt upp­á­halds á hlaðborðinu. Einnig eru sum­ar kræs­ing­ar vin­sælli en aðra og rjúka út um leið og þær eru born­ar á borð.

Á kosn­inga­skrif­stof­unni hjá Baldri Þór­halls­syni stjórn­mála­fræðingi og for­setafram­bjóðanda til embætt­is for­seta Íslands njóta vöffl­urn­ar mik­illa vin­sælda. Þegar Bald­ur er innt­ur eft­ir upp­skrift­inni var hann ekki al­veg til­bú­inn að gefa leyniupp­skrift­ina en hann er til í að segja frá sinni upp­á­halds­köku og deila með les­end­um mat­ar­vefs mbl.is upp­skrift­inni.

Upp­skrift­in kosn­inga­leynd­ar­mál

„Vöffl­urn­ar eru feyki vin­sæl­ar hjá okk­ur enda alltaf góðar og svo meira en bara bakk­elsi, þeim fylg­ir ákveðin hlýja og minn­ing­ar um vöfflukaffi hjá ömmu. Þegar við Fel­ix vor­um á ferð um landið feng­um við ynd­is­legt fólk hvaðanæva að, sem til­búið var að leggja okk­ur lið við bakst­ur­inn. Upp­skrift­in sjálf er mikið kosn­inga­leynd­ar­mál, en þegar baka á mikið magn af vöffl­um er gott að grípa í Vil­ko pakk­ana en bæta svo leyni­hrá­efni við blönd­una. Með vöffl­un­um á svo alltaf að bjóða upp á rabarbara­sultu og rjóma en í dag er fólk að setja alls kon­ar á vöffl­urn­ar sín­ar. Það geta verið ann­ars kon­ar sult­ur, súkkulaði, strá­syk­ur og jafn­vel rjómi, þeytt­ur með jarðarberj­um eða Daim-kurli,“ seg­ir Bald­ur og glott­ir.

Stefn­um að Norður­landa­meti í ofdekri barna­barna

„Á kosn­inga­skrif­stof­unni okk­ar við Grens­ás­veg er alltaf heitt á könn­unni. Við bjóðum upp á pönnu­kök­ur á hverj­um morgni en þar er líka að finna ban­ana­brauð, klein­ur og skinku­horn svo fátt eitt sé nefnt. Við pöss­um okk­ur að vera með eitt­hvað í boði fyr­ir börn­in líka, barna­börn­in okk­ar eru líka mikið með okk­ur niðri á kosn­inga­skrif­stofu og við Fel­ix stefn­um á Norður­landa­met í ofdekri barna­barna með frjálsri aðferð, svo þessi vöfflu­bakst­ur er auðvitað liður í því líka,“ seg­ir Bald­ur og hlær.

Herrag­arðskak­an henn­ar ömmu Lóu

Aðspurður seg­ir Bald­ur að hann eigi sér sína upp­á­halds­köku sem hon­um finnst ómiss­andi að bjóða upp við stærri til­efni. „Við stærri til­efni eins og þegar við opnuðum kosn­inga­skrif­stof­una var úr­valið nær enda­laust af hnallþórum og góðgæti. Upp­á­halds kök­una mína fékk á jól­un­um hjá ömmu Lóu, en hún kallaði hana Herrag­arðsköku. Frænka mín, Hrund Þránd­ar­dótt­ir, gaf út mat­reiðslu­bók með upp­skrift­un­um henn­ar en bók­in nefn­ist Upp­skrift­ir ömmu Lóu. Mig lang­ar að deila með les­end­um upp­skrift­inni að þess­ari dýrðlegu köku,“ seg­ir Bald­ur að lok­um.

Matreiðslubókin sem ber heitið Uppskriftir ömmu Lóu sem Baldur heldur …
Mat­reiðslu­bók­in sem ber heitið Upp­skrift­ir ömmu Lóu sem Bald­ur held­ur mikið upp á. Sam­sett mynd

Vöffluuppskriftin hans Baldurs kosningaleyndarmál

Vista Prenta

Herrag­arðskak­an

Botn­ar

  • 100 g smjör­líki
  • 100 g syk­ur
  • 2 egg
  • 1 eggj­ar­auða
  • 100 g hveiti
  • ½ tsk. lyfti­duft

Aðferð:

  1. Byrjið á því að þeyta sam­an syk­ur, egg, eggj­ar­auðu og smjör­líki.
  2. Bætið síðan út í hveiti og lyfti­dufti og hrærið sam­an við.
  3. Smyrjið tvö kringl­ótt form í meðal­stærð og skiptið síðan deig­inu bróður­lega á milli formanna tveggja.
  4. Hitið ofn­inn í 180°C hita og setjið formin inn.
  5. Þegar botn­arn­ir eru hálf­bakaðir er eggja­hvítu­blönd­unni bætt ofan á ann­an botn­inn og topp­ar bún­ir til (sjá upp­skrift hér fyr­ir neðan).
  6. Bakið áfram þar til botn­arn­ir eru full bakaðir að ykk­ar mati.

Ofan á botna

  • 2 eggja­hvít­ur
  • 2 msk. syk­ur
  • 2 msk. rús­ín­ur

Aðferð og sam­setn­ing:

  1. Eggja­hvít­ur þeytt­ar, sykri bætt smám sam­an út í, þar til þær eru orðnar stífþeytt­ar.
  2. Rús­ín­um bætt var­lega sam­an við með sleikju.
  3. Eins og áður sagði er eggja­hvítu­bland­an sett ofan á ann­an botn­inn þegar þeir eru hálf­bakaðir og topp­arn­ir bún­ir til.
  4. Útbúið brúnt smjörkrem að eig­in vali. Smyrjið smjörkremi á ann­an botn­inn án topp­anna og setjið síðan botn inn með eggja­hvít­unni ofan á.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert