Bakarar baka ekki bara vandræði

Síðastliðinn fimmtudag útskrifuðust 13 bakarar með sveinspróf í bakaraiðn og …
Síðastliðinn fimmtudag útskrifuðust 13 bakarar með sveinspróf í bakaraiðn og hafa því fengið réttindi til að kalla sig bakara. Aldrei hafa fleiri þreytt sveinspróf síðan árið 2000 eða í aldarfjórðung. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Síðastliðinn fimmtudag útskrifuðust 13 bakarar með sveinspróf í bakaraiðn og hafa því fengið réttindi til að kalla sig bakara. Þetta er stór áfangi fyrir greinina en aldrei hafa fleiri þreytt sveinspróf síðan árið 2000 eða í aldarfjórðung. Hópurinn samanstendur af 7 stelpum og 6 strákum. Bakaraiðnin hefur lengi verið karlæg, en þessi fjölgun bendir til jákvæðrar þróunar.

Fleiri stelpur en strákar útskrifuðust að þessu sinni en alls …
Fleiri stelpur en strákar útskrifuðust að þessu sinni en alls kláruðu 7 stelpur sveinsprófið að þessu sinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skráning í námið farið fram úr væntingum

Hótel- og matvælaskólinn hefur fundið fyrir auknum áhuga ungs fólks á bakstri. Skráning í bakaranámið fyrir komandi haust hefur nú þegar farið fram úr væntingum en ekki er endanlega búið að ganga frá skráningu fyrir næsta skólaár.

Hver er skýringin á þessari fjölgun?

„Erfitt er að segja með vissu, en augljóst er að skýringin er jákvæð. Samfélagsmiðlar hafa einnig spilað stórt hlutverk í að kynna bakaraiðnina fyrir ungu fólki á nýjan hátt,“ segir Árni Þorvarðarson fag­stjóri í bak­araiðn hjá Hót­el- og mat­væla­skól­an­um í Kópa­vogi.

„Það er mikilvægt að námið haldi í við tíðarandann en einnig að gleyma ekki sögunni og klassískum aðferðum. Með áframhaldandi áhuga ungs fólks er von á fleiri ungum bökurum sem leita sér af tækifærum bæði innanlands og erlendis. Þetta styrkir greinina og gefur nemendum verðmæta reynslu,“ bætir Árni við.

„Baksturinn er því ekki bara vandræði, heldur tækifæri til að skapa ljúffenga og skapandi framtíð fyrir nýja kynslóð bakara. Með áherslu á nýsköpun, hefðbundnar aðferðir og alþjóðlegan metnað, eru þessir nýju bakarar tilbúnir að mæta kröfum framtíðarinnar,“ segir Árni að lokum.

Þessi luku sveinsprófi

Eftirtaldir bakaranemar luku sveinsprófi og hafa nú fengið titilinn bakarar:

Birgir Fannar Sigurðarson – Almar bakari

Darri Dór Orrason – Reynir bakari

Finnur Guðberg Ívarsson Prigge  Kökulist/Bláa lónið

Guðbjörg Ósk Andreasen Gunnarsdóttir – Brikk

Gunnar Jökull Hjaltason – Mosfellsbakarí

Hekla Guðrún Þrastardóttir – Hygge

Karen Guðmundsdóttir – Gulli Arnar

Lovísa Þórey Björgvinsdóttir – Bæjarbakarí

Matthildur Ósk Guðbjörnsdóttir – Gulli Arnar

Mikael Sævarsson – Kalla bakarí

Óli Steinn Steinþórsson – Gæðabakstur

Pálmi Hrafn Gunnarsson – Ikea

Sunneva Kristjánsdóttir – Sandholt

„Þessi fjölgun bakara gefur góð fyrirheit um framtíðina og vekur vonir um enn meiri vöxt og framþróun í bakaraiðninni,“ segir Sigurður Már Guðjónsson formaður LABAK og formaður sveinsprófsnefndarinnar og bætir við glæsileg sveinspróf eins og þessi boði bjarta framtíð fyrir stéttina.

Sigurður Már Guðjónsson formaður LABAK og formaður sveinsprófsnefndarinnar var mjög …
Sigurður Már Guðjónsson formaður LABAK og formaður sveinsprófsnefndarinnar var mjög ánægður með árangurinn á sveinsprófinu og segir framtíðina vera bjarta fyrir stéttina. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Matarvefurinn óskar nýútskrifuðum bökurum til hamingju með sveinsprófið.

Sjáið glæsiegu kræsingarnar sem nýútskrifuðu bakararnir töfruðu fram á sveinsprófinu.

Kræsingarnar voru hinar girnilegustu og hlaðborðin aðlaðandi. Hér er Finnur …
Kræsingarnar voru hinar girnilegustu og hlaðborðin aðlaðandi. Hér er Finnur Guðberg Ívarsson nýútskrifaður bakari við hlaðborðið sitt. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Baguetta brauð voru meðal verkefna sem nemendur þurftu að skila.
Baguetta brauð voru meðal verkefna sem nemendur þurftu að skila. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Brauðin lokka bæði augu og munn.
Brauðin lokka bæði augu og munn. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Fylltar vatnsdeigsbollur.
Fylltar vatnsdeigsbollur. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Vínarterta að betri gerðinni.
Vínarterta að betri gerðinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Guðdómlega fögur terta.
Guðdómlega fögur terta. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Einfaldleikinn gleður líka.
Einfaldleikinn gleður líka. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Freistandi að njóta.
Freistandi að njóta. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Bakkelsið fagnaði augu og munn.
Bakkelsið fagnaði augu og munn. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Handbragðið fallegt.
Handbragðið fallegt. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Fersk ber fá að njóta sín líka.
Fersk ber fá að njóta sín líka. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Fylltar kræsingar.
Fylltar kræsingar. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Hugsað er fyrir hverju smáatriðið í heildarútkomunni.
Hugsað er fyrir hverju smáatriðið í heildarútkomunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert