Á árshátíð Klúbbs matreiðslumeistara nú nýverið var Snædís Xyza Mae Ocampo matreiðslumeistara veit Cordon Blue orða Klúbbs matreiðslumeistara en orðan er veitt þeim sem sýnt hafa fram á framúrskarandi starf í þágu matreiðslufagsins.
Byrjaði að mennta sig í fatahönnun
Snædís fæddist á Filippseyjum 1989 og flutti ung til Íslands, þrátt fyrir að oft hafi á móti blásið, kemur hún alltaf út sem sannur sigurvegari. Snædís ólst upp á Dalvík og flutti síðar til Reykjavíkur til að mennta sig í fatahönnun, en eftir að hafa kynnst matreiðslufaginu í aukavinnu á Sushi Social færði hún sig yfir í matreiðsluna. Hóf námið á Apótekinu, færði sig síðan á Hótel Sögu og útskrifaðist þaðan 2018. Hún starfar núna sem yfirmatreiðslumaður ION Hotel og er þjálfari íslenska kokkalandsliðsins.
Hefur tvisvar hlotið brons á Ólympíuleikunum í matreiðslu
Snædís er þaulreynd í keppnismatreiðslu og hóf sín afskipti af íslenska kokkalandsliðinu sem aðstoðarmaður 2015 og tók þátt ásamt liðinu á Ólympíuleikum 2016. Hún var svo fyrirliði liðsins þegar það náði sínum besta árangri og varð í 3. sæti á Ólympíuleikum 2020 samhliða því sem hún gekk með sitt fyrsta barn.
„Hún tók við þjálfun liðsins í apríl 2023 og leiddi liðið aftur á pall þar sem það jafnaði árangur sinn frá 2020 og náði 3. sæti. Sem er eftirtektarverður árangur eftir skamma en snarpa 9 mánaða lotu í æfingum, en flest liðin æfðu í 2 ár fyrir mótið,“ segir Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara. „Snædís er flinkur fagmaður, okkur öllum frábær fyrirmynd, fær stjórnandi og sannur leiðtogi. Fremst á meðal jafningja,“ segir Þórir að lokum og horfir björtum augum til framtíðar fyrir hönd íslenska kokkalandsliðsins.