Merkja 1.500 vörur með grænum punkti

Kristín Gunnarsdóttir, rekstrarstjóri Kjörbúðarinnar, og Ásdís Ragna Valdimarsdóttir, markaðsstjóri Kjörbúðarinnar.
Kristín Gunnarsdóttir, rekstrarstjóri Kjörbúðarinnar, og Ásdís Ragna Valdimarsdóttir, markaðsstjóri Kjörbúðarinnar. Samsett mynd

Kjörbúðin býður upp á yfir 1.500 lykilvörur á lágvöruverði, og hefur nú merkt þær með grænum punkti til að auðvelda viðskiptavinum að þekkja þær. Lykilvörur eru þær vörur sem eru mest keyptar af nágrönnum hverrar verslunar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kjörbúðinni.

Segir þar að „Lykilvörur á lágvöruverði“ séu hluti af þeirri stefnu Kjörbúðarinnar að tryggja hagkvæma verslun í heimabyggð, en lykilvörur séu þær vörur sem heimafólk kaupir mest inn fyrir heimilið.

Nýlega var vörunum fjölgað úr 1.000 í 1.500, og eru þær nú allar merktar með grænum punkti á hillumiðanum. Viðskiptavinir eru sagðir geta treyst því að vara merkt með grænum punkti sé alltaf á sambærilegu verði og í lágvöruverðsverslun.

Standist alltaf samanburð

„Hugmyndin að grænu punktunum spratt upp frá athugasemdum viðskiptavina okkar um það hvernig við getum best mætt óskum þeirra um lægra vöruverð,“ er haft eftir Ásdísi Rögnu Valdimarsdóttur, markaðsstjóra Kjörbúðarinnar, í tilkynningu.

„Valið á þessum vörum byggir á því hvaða vörur eru mest seldar bæjarbúum og nærsveitungum hverrar verslunar, og getum við því verið sveigjanleg í því vali til að mæta kröfum og þörfum á hverjum stað.

Okkar loforð er að verðið á punktamerktum vörum standist alltaf samanburð við verð á sambærilegum vörum hjá lágvöruverðsverslunum.“

Sextán verslanir

Kjörbúðin er sú verslunarkeðja sem rekur flestar verslanir utan höfuðborgarsvæðisins, eða 16 talsins, sem felur í sér ákveðna stærðarhagkvæmni. Þá hagkvæmni segist Kjörbúðin nýta sér til að halda uppi góðum rekstri, og að hún geti þar með komið betur til móts við þarfir kjarna-viðskiptavina.

„Að reka matvöruverslun í byggðum þar sem fólksfjöldinn ber ekki stórar lágvöruverðsverslanir krefst mikillar útsjónarsemi,“ er haft eftir Kristínu Gunnarsdóttur, rekstrarstjóra Kjörbúðarinnar.

„Við höfum gripið til margra aðgerða til að halda vöruverði sem lægstu og höfum spyrnt á móti verðhækkunum birgja. Það gerum við til að tryggja íbúum þjónustu og verslun í heimabyggð, en líka til að vera raunhæfur kostur fyrir íbúana. Þannig halda hagsmunir okkar áfram að liggja saman.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert