Coocoo's teymið mætir á Listahátíð í Reykjavík í Iðnó á morgun, sunnudaginn 9. júní milli klukkan 12.00 - 15.00 og býður upp á einn klassískan og vinsælan brönsrétt sem er að þessu sinni „Morgunverðarvefjan“.
Coocoo's teymið, Lucas Keller, Íris Ann Sigurðardóttir og synir þeirra áttu og ráku veitingastaðinn The CooCoo's Nest út á Granda í Reykjavík í liðlega tíu ár en lokuðu í lok ársins 2022. Staðurinn naut mikilla vinsælda og var búinn að eignast stóran hóp af fastakúnnum. Margir sjá mikið eftir staðnum og munu eflaust fagna að geta skroppið á Iðnó og notið þess að fá sér morgunverðarvefju að hætti kokksins á The CooCoo's Nest og rifjað upp bragðupplifunina sem í boði var.
Síðan mun matarstílistinn Áslaug Snorradóttir taka við kaffinu og verður þá í boði að versla sér „Hamingjuský“. Þær vinkonur Áslaug og Andrea verða með óskastund þar sem allar óskir rætast með hamingjuskýjum og tertufjöri.