Ilmandi Móbergsskonsur með eplum og kanil

Brynja Dadda Sverrisdóttir hefur mikla ástríðu fyrir bakstri í eldhúsinu …
Brynja Dadda Sverrisdóttir hefur mikla ástríðu fyrir bakstri í eldhúsinu sínu í Móberginu. Hér er hún búin að baka dýrðlega skonsur. Samsett mynd

Hér er á ferðinni dýrðleg uppskrift að skonsum með kanil og eplum sem steinliggja með sunnudagskaffinu. Uppskriftin kemur úr smiðju Brynju Döddu Sverr­is­dótt­ur ofan úr fjall­inu í Kjós, Mó­berg­inu fræga og því köllum við skonsurnar Móbergsskonsur. Brynja Dadda hefur ástríðu fyrir bakstrinum og heill­ar alla sína gesti með sín­um ómót­stæðilegu kræs­ing­um sem hún ber á borð þegar gesti ber að garði.

„Skonsurnar eru bestar nýjar, ef þær klárast ekki á fyrsta degi er sniðugt að setja þær í frost og taka síðan út þegar á að njóta,“ segir Brynja Dadda. Nú er bara að prófa og njóta.

Móbergsskonsur með eplum og kanil

20 - 24 bollur – allt eftir stærð

  • 350 g hveiti
  • 2 tsk. kanill
  • 1,5  tsk. lyftiduft
  • 0,5 tsk. salt
  • 90 g kalt smjör
  • 100 gr flórsykur
  • 1 epli, skorið mjög smátt
  • 1,5 dl hreint jógúrt
  • 1,5 dl rjómi (eða mjólk)

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita ofninn í 200°C.  
  2. Setjið hveiti, kanill, lyftiduft og salt saman í skál og hrærið vel saman. Myljið kalt smjör út í, má raspa út ef vill.  
  3. Setjið síðan sykurinn settur út í og síðan eplabitana.
  4. Blönduna má hræra í vél en líka alveg hægt að hræra í höndum.
  5. Bætið loks blautefnum saman við, mjólk og jógúrti og hrærið.
  6. Ef þið viljið hafa skonsurnar kringlóttar eða þríhyrningslaga, getið þið skellt deiginu á borð og skorið út hringi eða þríhyrnur en Brynju Döddu finnst bara fínt að moka þessu með stórri skeið (eins og salat- eða ísskeið) beint á plötu. Skonsur mega alveg vera grófar og óreglulegar í laginu.
  7. Ef þið viljið meira sætabrauð má strá örlitlum hrásykri yfir deigið áður en það fer inn í ofn.
  8. Setjið síðan inn í heitan ofninn og fylgist vel með tímanum. Þegar það eru komnar 15 mínútur til 18 mínútur ættu þær að vera tilbúnar. Stórar bollur/skonsur þurfa alveg 18 mínútur eða meira.
  9. Takið út þegar liturinn er orðinn fínn á yfirborði og botni. Kælið pínulítið og síðan er bara að bera skonsurnar fram með því sem hugurinn girnist og njóta. Smjör og ostur passar fínt en þarf ekkert endilega.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert