Mörgum finnst gott að byrja daginn á heitum drykk sem nærir líkama og sál. Hér erum við komin með uppskrift að heitum ljúfum drykk sem inniheldur hið góða matcha te sem gefur pottþétt góða orku inn í daginn. Þetta heitt matche latte og er gullfallegt í glasi.
Heitt matcha latte
- 3 ½ msk. heitt vatn (70-80°C)
- 1 tsk. Moya matcha daily eða traditional
- 1 glas plöntumjólk eftir smekk
- 1 tsk. hunang eða agave síróp
Aðferð:
- Setjið matcha í tómt glas og hellið vatni yfir.
- Blandið saman með matcha písk eða handflóara í um það bil 30 sekúndur.
- Bætið hunangi eða agavesírópi út í og blandið öllu rólega saman við.
- Flóið plöntumjólkina og hellið saman við matcha teið.
- Berið fram og njótið í hugguleg heitum.
- Þið getið skreytt að vild líkt og gert hér á myndinni.