Snilldarráð Auðar fyrir pönnukökubaksturinn

Auður Ögn Árnadóttir hjá 17 Sortum lumar á snilldarráði fyrir …
Auður Ögn Árnadóttir hjá 17 Sortum lumar á snilldarráði fyrir pönnukökubaksturinn. Til hátíðarbrigða gerir hún vel við sig þegar pönnukökurnar eru bornar fram. Samsett mynd

Þegar und­ir­rituð leitaði til Auðar Agn­ar Árna­dótt­ur og Sylvíu Hauk­dal hjá 17 Sort­um á dög­un­um varðandi hug­mynd­ir að þjóðlegu bakk­elsi fyr­ir þjóðhátíðardag­inn, laumaði Auður því að mér að hún lumaði á snilld­ar­ráði sem gerði pönnu­köku­bakst­ur­inn eins auðveld­an og hann gæti orðið. Ég fékk hana að sjálf­sögðu til að deila þessu ráði með les­end­um Mat­ar­vefs­ins.

Aðferðin skipt­ir sköp­un

Auður seg­ist nota upp­skrift af pönnu­kök­um frá lang­ömmu sinni Hall­dóru, en að upp­skrift­in sé svo sem hvorki betri né verri en aðrar slík­ar, held­ur sé það aðferðin sem skipti sköp­um.

„Ég á 5 börn og bráðum 5 barna­börn og 4 tengda­börn þannig að það get­ur verið fjör­ugt þegar við kom­um öll sam­an, sem er bara skemmti­legt, en ég byrjaði að þróa þessa aðferð þegar að ég sá fram á að þurfa að fæða fjöld­ann á sem skemmst­um tíma,“ seg­ir Auður bros­andi.

„Öll elska þau pönnu­kök­ur og ég get verið mjög snögg að henda í 1-2 upp­skrift­ir af þess­ari dá­semd og þegar bakað er á 2-3 pönn­um í einu tek­ur þetta enga stund. Ég tek fram könn­una á bland­ar­an­um mín­um og nota mæliein­ing­arn­ar sem á hon­um eru til mæla inni­halds­efn­in, þannig set ég þau í bland­ar­ann hver á eft­ir öðru, skelli könn­unni í bland­ar­ann og læt hann ganga í 20-30 sek­únd­ur á lægsta hraða. Síðan helli ég úr bland­ara­könn­unni beint á pönn­una þegar ég baka pönnu­kök­urn­ar þannig að allt upp­vaskið eft­ir bakst­ur­inn er þessi eina kanna.“

Mælikannan er það eina sem Auður þarf fyrir baksturinn fyrir …
Mælikann­an er það eina sem Auður þarf fyr­ir bakst­ur­inn fyr­ir und­an pönnu­kökupönn­urn­ar. Ljós­mynd/​Auður Ögn Árna­dótt­ir

Heima­gerða sulta Royal Cham­bo­ard spar­inammi

Auður er mik­ill sæl­keri og nýt­ur þess að gera vel við sig á betri dög­um. Þegar hún ber pönnu­kök­urn­ar fram fyr­ir yngri kyn­slóðina er það yf­ir­leitt með sykri og/​eða Nu­tella. Sjálf vill hún rjóma og sultu til hátíðarbrigða, þá helst Royal Cham­bo­ard sultu sem er heima­gerð.  „Ég geri yf­ir­leitt Royal Cham­bo­ard sultu einu á ári með systr­um mín­um, en sú sulta er al­gjört spar­inammi og hrein­lega efni í annað viðtal,“ seg­ir Auður og bros­ir.

Pönnukökurnar eiga vel við á 17. júní.
Pönnu­kök­urn­ar eiga vel við á 17. júní. Ljós­mynd/​Auður Ögn Árna­dótt­ir

Hér er kom­in upp­skrift að pönnu­kök­un­um henn­ar Auðar úr smiðju lang­ömmu henn­ar og snilld­ar­ráðið við bakst­ur­inn sem ein­fald­ar lífið. Auður not­ar eng­an syk­ur í deigið, því pönnu­kök­urn­ar eru sykraðar um leið og þær koma af pönn­unni og henni finnst það duga.

Upprúllaðar pönnukökur með sykri og pönnukökur með sultu og rjóma …
Upp­rúllaðar pönnu­kök­ur með sykri og pönnu­kök­ur með sultu og rjóma njóta ávallt mik­illa vin­sælda. Ljós­mynd/​Auður Ögn Árna­dótt­ir

Snilldarráð Auðar fyrir pönnukökubaksturinn

Vista Prenta

Pönnu­kök­ur Hall­dóru lang­ömmu

Um það bil 25 pönnu­kök­ur

  • Mjólk
  • Hveiti
  • Egg
  • Smjör við stofu­hita
  • Vanillu- og sítr­ónu­drop­ar
  • Salt

Aðferð:

  1. Byrjið á að hella mjólk í könn­una upp að 500 ml mark­inu, bætið þar næst við hveiti upp að 950 ml mark­inu, eggj­um að 1150 ml mark­inu og smjöri að 1200 ml.
  2. Út í þetta fer dass af vanillu­drop­um og sítr­ónu­drop­um ( 2-3 tsk. í heild­ina) og klípa af salti.
  3. Þegar búið er að láta deigið sam­lag­ast í bland­ar­an­um er gott að hvíla deigið í 20-30 mín­út­ur, en alls ekki nauðsyn­legt ef ekki vinnst tími til.
  4. Auður ber svo pönnu­kök­urn­ar fram með annað hvort með sykri eða Nu­tella því þannig finnst barna­börn­un­um henn­ar þær besta.
Til hátíðarbrigða er ljúft að bera fram kampavín með íslensku …
Til hátíðarbrigða er ljúft að bera fram kampa­vín með ís­lensku pönnu­kök­un­um. Ljós­mynd/​Auður Ögn Árna­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert