Guðrún býður upp á Panna Cotta í hátíðarbúningi

Þessi gullfallegi og þjóðlegi eftirréttur, Panna Cotta í hátíðarbúningi, kemur …
Þessi gullfallegi og þjóðlegi eftirréttur, Panna Cotta í hátíðarbúningi, kemur úr smiðju Guðrún­ar Erlu Guðjóns­dótt­ur. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór Árnason

Þessi gull­fal­legi og þjóðlegi eft­ir­rétt­ur, Panna Cotta í hátíðarbún­ingi, kem­ur úr smiðju Guðrún­ar Erlu Guðjóns­dótt­ur, bak­ara og nema í konditori. Guðrún ætl­ar að halda upp á þjóðhátíðardag­inn, 17. Júní með pomp og prakt og bjóða upp á Panna Cotta eft­ir­rétt­inn í ís­lensku fána­lit­un­um í til­efni dags­ins.

Guðrún Erla Guðjónsdóttir er hæfileikaríkur bakarí og býr yfir listrænum …
Guðrún Erla Guðjóns­dótt­ir er hæfi­leika­rík­ur bakarí og býr yfir list­ræn­um hæfi­leik­um. mbl.is/​Eyþór Árna­son

Guðrún er ein­stak­lega hæfi­leika­rík í sínu fagi og list­ræn­ir hæfi­leik­ar henn­ar skína í gegn­um bakst­ur­inn. Þessi eft­ir­rétt­ur er fal­leg­ur fyr­ir augað og ein­stak­ur fyr­ir bragðlauk­ana að njóta.

Fallegur eftirréttur í íslensku fánalitunum.
Fal­leg­ur eft­ir­rétt­ur í ís­lensku fána­lit­un­um. mbl.is/​Eyþór Árna­son

Guðrún býður upp á Panna Cotta í hátíðarbúningi

Vista Prenta

Panna Cotta í hátíðarbún­ingi

Fyr­ir 4

  • 30 g vanillu­syk­ur
  • 480 g rjómi
  • Börk­ur af tveim­ur límón­um
  • 4 stk. mat­ar­líms­blöð
  • 72 g syk­ur
  • 8 g Grand Mar­in­er
  • Blár mat­ar­lit­ur
  • Hind­berjamiðja
  • Fersk til skrauts að eig­in vali.

Aðferð:

  1. Leggið mat­ar­límið ofan í kalt vatni.
  2. Hitið rjómann ásamt límónu­berk­in­um og vanillu­sykr­in­um.
  3. Látið suðuna koma upp, lækkið síðan hit­ann, og látið malla á mjög lág­um hita í 5 mín­út­ur.
  4. Takið af hit­an­um eft­ir 5 mín­út­ur og bætið þá mat­ar­lím­inu, sykri og Grand Marnier út í og ​​hrærið vel.
  5. Sigtið mass­ann og setjið til hliðar.
  6. Hellið blá­um mat­ar­lit út í ¾ af panna cotta blönd­unni og hellið helm­ing í 4 glös.
  7. Setjið í frysti og leyfið að setj­ast í 20 mín­út­ur.
  8. Hellið síðan þunnu lagi af hvítri panna cotta blönd­unni og leyfið blönd­unni að setj­ast í 10 mín­út­ur.
  9. Síðan fer hind­berja­bland­an (sjá upp­skrift fyr­ir neðan) í miðjuna og leyfið henni að setj­ast í 10 mín­út­ur í frysti.
  10. End­ur­takið síðan með hvítu og bláu panna cotta blönd­unni og leyfið þessu að vera í kæli yfir nótt.
  11. Skreytið með fersk­um berj­um að vild og njótið.

Hind­berja miðja:

  • 100 g fros­in hind­ber
  • 20 g syk­ur
  • 1 stk. mat­ar­líms­blað

Aðferð:

  1. Leggið mat­ar­lím í bleyti, í kalt vatn.
  2. Hitið frosnu hind­ber­in og syk­ur­inn sam­an og blandið vel.
  3. Þegar bland­an er búin að sjóða, setjið þá töfra­sprota út í til að ná síðustu hind­berja klump­un­um út.
  4. Setjið síðan mat­ar­límið út í og leyfið blönd­unni að kólna.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert