Þjóðleg pönnukökukaka í tilefni dagsins

Þessi pönnukökukaka er algjört sælgæti að njóta.
Þessi pönnukökukaka er algjört sælgæti að njóta. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Íslensk­ar pönnu­kök­ur eru sí­vin­sæl­ar og sér­stak­lega á þjóðhátíðar­degi Íslend­inga. Við bök­um reglu­lega slík­ar og sitt sýn­ist hverj­um með fyll­ing­ar, sum­ir vilja syk­ur, aðrir rjóma, enn aðrir súkkulaði og allt þar á milli líkt og Berg­lind Hreiðars hjá Gotte­rí og ger­sem­ar veit vel. Hún tók sam­an sitt upp­á­hald á pönnu­kök­ur, jarðarber og súkkulaði og blandaði sam­an við rjóma­fyll­ingu og út­bjó pönnu­köku-köku. Í til­efni dags­ins er vert að birta þessa dá­sam­legu upp­skrift og mynd­band sem Berg­lind deildi með fylgj­end­um sín­um á In­sta­gram-síðu sinni. Gleðileg­an 17. júní.

Þjóðleg pönnukökukaka í tilefni dagsins

Vista Prenta

Þjóðleg pönnu­kökukaka

Pönnu­kök­ur

  • 400 g hveiti
  • 40 g syk­ur
  • 1 tsk. lyfti­duft
  • ½ tsk. mat­ar­sódi
  • ½ tsk. salt
  • 900 ml nýmjólk
  • 100 g brætt smjör
  • 4 egg (pískuð)
  • 4 tsk. vanillu­drop­ar

Aðferð:

  1. Hrærið  hveiti, sykri, lyfti­dufti, mat­ar­sóda og salti sam­an í skál.
  2. Blandið um ¾ af mjólk­inni sam­an við og hrærið þar til kekkjalaust.
  3. Bætið þá bræddu smjöri, eggj­um og vanillu­drop­um út í og hrærið áfram vel, skafið niður á milli.
  4. Að lok­um má svo setja rest­ina af mjólk­inni sam­an við og hræra vel.
  5. Steikið síðan þunn­ar kök­ur á pönnu­kökupönnu og leyfið aðeins að kólna niður áður en þið raðið kök­unni sam­an.

Fyll­ing í pönnu­köku­köku

  • 750 ml rjómi
  • 3 tsk. flór­syk­ur
  • 1 tsk. vanillu­syk­ur
  • 200 g jarðarber
  • 200 g Nu­tella
  • Jarðarber til skrauts

Aðferð:

  1. Þeytið rjómann ásamt flór­sykri og vanillu­sykri þar til hann er stífþeytt­ur.
  2. Stappið jarðarber­in gróft og blandið sam­an við rjómann.
  3. Hitið Nu­tella aðeins í skál svo auðveld­ara verði að dreifa því yfir með skeið.
  4. Setjið eina pönnu­köku í botn­inn á um 20 cm smellu­formi.
  5. Næst setjið þið 4 pönnu­kök­ur á kant­inn á form­inu svo þær nái yfir kök­una á botn­in­um, inn­an á all­an kant­inn og hangi fram af að ut­an­verðu (c.a jafn mikið báðu meg­in).
  6. Smyrjið næst þunnu lagi (um ½ cm) af rjóma á botn­inn, dreifið smá Nu­tella yfir og setjið næstu pönnu­köku ofan á.
  7. End­ur­takið þar til síðasta pönnukakan er orðin jafn há form­inu sem þið notið.
  8. Náið þá í kökudisk og leggið ofan á formið á hvolfi, snúið við með því að halda fast við köku­formið og losið síðan smell­una og fjar­lægið formið utan af kök­unni.
  9. Toppið með smá rjóma, Nu­tella og fersk­um jarðarberj­um.
  10. Berið fram og njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert