Í fyrsta sinn tekið við bókunum í gegnum Michelin leiðarvísinn

Íslensk veitingahús geta nú í fyrsta sinn tekið við bókunum …
Íslensk veitingahús geta nú í fyrsta sinn tekið við bókunum beint í gegnum Michelin leiðarvísinn. Ljósmynd/Aðsend

Íslensk veitingahús geta nú í fyrsta sinn tekið við bókunum beint í gegnum Michelin leiðarvísinn. Tæknilegur samstarfsaðili Michelin fyrirtækisins, Mozrest, tilkynnti þetta samhliða kynningu nýrra norrænna veitingastaða sem hljóta Michelin-stjörnu eða sérstök meðmæli í nýjasta leiðarvísinum.

Hér á landi er samstarfið í gegnum tengingu við íslenska bókunarkerfið Noona, sem nýverið hóf innreið sína á borðabókunarmarkaðinn. Veitingahús sem nota Noona kerfið munu geta tekið við bókunum beint í gegnum app eða vefsíðu Michelin, sem fjölmargir mataráhugamenn nota.

Noona komið í samstarf við stærstu leitarvélarnar erlendis

Samningur Noona við Mozrest tryggir, til viðbótar við Michelin, beina tengingu við borðabókanir í gegnum Google, Facebook, Instagram og Tripadvisor. Það eru því ekki aðeins þau íslensku veitingahús sem koma fyrir í leiðarvísi Michelin fyrirtækisins sem munu njóta góðs af samningnum. Samstarfi Noona og Mozrest fylgir bein tenging við alla stærstu vefina sem erlendir ferðamenn notast við þegar þeir leita að borði á íslenskum veitingahúsum.

Noona er í góðum félagsskap en mörg stærstu borðabókunarkerfi Evrópu hafa á síðustu vikum gerst aðilar að samstarfinu við Michelin-leiðarvísinn. Þar á meðal eru easyTableBooking, Formitable, Quandoo, SevenRooms og TableOnline.

Þessir íslensku staðir eru í leiðarvísinum í ár

Fram kom á viðburðinum, sem fram fór í Helsinki um mánaðamótin, að sex staðir á Norðurlöndunum hafi í ár hlotið 3 Michelin-stjörnur, tveir fái 2 stjörnur, níu 1 stjörnu, fjórir sjálfbærnistjörnu og átta fái sérstök meðmæli, þar á meðal OTO á Hverfisgötu.

Þar með eru þeir veitingastaðir á Íslandi sem hlotið hafa meðmæli frá Michelin-leiðarvísinum OTO, Matur og Drykkur, Sümac, TIDES og Brút, og þá eru veitingastaðirnir ÓX, Dill og Moss með eina Michelin-stjörnu hver.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert