Á dögunum var haldin einstök keppni í Hótel- og matvælaskólanum þar sem Axel Schitt frumkvöðull í þýskum bakstri, bakarameistari og frægasti bakarinn í Þýskalandi og Ásgeir Þór Tómasson, faggreina kennari við skólann, tókust á í bakstri. „Ásgeir, sem hefur upplifað margt á sinni ævi, átti því að mæta hinum nýja í þessari skemmtilegu keppni. Þessi viðburður var sannarlega áhugaverð samkeppni milli gamalla og nýrra strauma í bakstri,“ segir Árni Þorvarðarson bakari og fagstjóri í bakaraiðn hjá Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi.
Keppnin bar nafnið „Keppni um betri íslenskan snúð“ og var dómnefndin skipuð íslensku keppendum, Heklu Guðrúnu Þrastardóttur og Stefaníu Malen Guðmundsdóttur sem tóku þátt í heimsmeistaramóti ungra bakara á dögunum. „Þýska sjónvarpið var einnig á staðnum til að taka upp hvert handtak keppendanna, sem beittu öllum brögðum í bókinni til að baka bragðgóða, mjúka snúða. Ekki má gleyma mikilvægi þess að meta hvernig snúðarnir smökkuðust með ískaldri mjólk, sem er ómissandi þáttur í íslenskri matarhefð,“ segir Árni og bætir við að allir hafi skemmt sér vel.
Eftir rúma tvo tíma af ákafri keppni var komið að dómnefndinni að dæma snúðana blint. Til allra hamingju skiptust atkvæðin jafnt, og niðurstaðan var stórmeistara jafntefli. Þetta jafntefli endurspeglar þá frábæru blöndu af íslenskum og þýskum baksturshefðum sem átti sér stað í þessari keppni.
„Eftir á var þetta frábært framtak hjá þýska bakaranum að koma í skólann okkar og spreyta sig gegn þeim íslensku. Þessi keppni var ekki aðeins skemmtileg og spennandi, heldur einnig góð áminning um hversu mikilvægt er að viðhalda og þróa baksturshefðir og deila þeim milli landa,“ segir Árni að lokum.