Langar þig í góðan kokteil sem er líka hollur? Þá er þetta rétti kokteillinn en hann inniheldur matchate sem er svo nærandi fyrir líkama og sál. Kokteillinn er fagurgrænn á litinn og gaman er að bera hann fram og skreyta með myntulaufum sem gefa frá sér ferskan og góðan ilm.
Hinn fullkomni matcha kokteill
Fyrir einn
- 2 1/2 mælieining gin
- 3⁄4 mælieining hunang
- 2⁄3 mælieining ferskur límónusafi
- 1 msk. Moya matcha daily eða Moya matcha traditional 230 ml vatn
- Fersk mynta eftir smekk
Aðferð:
- Blandið myntu og hunangi í botninn á kokteilhristara.
- Útbúið Matcha teið með hefðbundinni leið eða setjið öll innihaldsefnin beint í kokteilhristarann ásamt klaka, hristið vel og sigtið í fallegt glas.
- Skreytið með myntulaufi og límónusneið.
- Njótið.