Hindberjasorbet sem þú átt eftir að elska

Frískandi og léttur hindberjasorbet.
Frískandi og léttur hindberjasorbet. Samsett mynd

Það er svo frísk­andi og létt að fá sér góðan sor­bet í eft­ir­rétt eða á heit­um degi. Þenn­an sor­bet með hind­berj­um ger­ir ég gjarn­an á þegar mig lang­ar í ferska eft­ir­rétt sem létt­ir melt­ing­una og gleður bragðlauk­ana. Sor­bet er líka afar frísk­andi að njóta á heit­um degi og miklu létt­ara í maga en ís. Það tek­ur smá tíma að gera sor­bet­inn þar sem það þarf bæði að kæla blönd­unn­ar og frysta til að úr verði sor­bet. Gott er að gera sor­bet­inn dag­inn fyr­ir notk­un. Einnig er gam­an að eiga auka hind­ber og myntu­lauf til að skreyta rétt­inn þegar hann er bor­inn fram.

Hind­berjasor­bet sem þú átt eft­ir að elska

Vista Prenta

Hind­berjasor­bet

Fyr­ir 5-6

  • 250 hind­ber, fersk
  • Safi úr ½ sítr­ónu
  • ½ dl syk­ur
  • 1 ¼ dl vatn

Aðferð:

  1. Byrjið á því að skola hind­ber­in upp úr köldu vatni.
  2. Setjið hind­ber­in í pott ásamt sykr­in­um og vatni.
  3. Látið suðuna koma upp og hrærið reglu­lega í blönd­unni.
  4. Látið sjóða í um það bil 2-3 mín­út­ur.
  5. Sigtið síðan ber­in gegn­um grisju til að fá tær­an safa.
  6. Kælið um stund og gerið sírópið.

Síróp

  • 1 ¼ dl vatn
  • 100 g syk­ur

Aðferð:

  1. Setjið vatn og syk­ur í góðan pott og gerðarleg­an pott.
  2. Látið suðuna koma upp og látið sjóða í 4-5 mín­út­ur.
  3. Kælið.

Sam­setn­ing á hind­berja­saf­an­um og síróp­inu

  1. Hellið hind­berja­blönd­unni ásamt sírópi og blanda vel sama í ísvél.
  2. Setjið síðan inn í frysti.
  3. Frystið í minnst 4 klukku­stund­ir eða leng­ur.
  4. Ef þið eigið ekki ísvél getið þið sett blönd­una í skál og hrært með handþeyt­ara. Setja síðan í frysti og taka út um það vil 20 til 30 mín­útna fresti og hræra aft­ur með handþeyt­ara með sor­bet­inn er að taka sig.
  5. Þegar þið berið sor­bet­inn fram er lag að taka til fal­leg glös á fæti eða skál­ar og nota ís­skeið til að skafa kúl­ur úr sor­bet­inu. Gott ráð er að dýfa skeiðinni ávallt í kalt vatn áður en hver kúla er gerð.
  6. Skreytið síðan með hind­berj­um og myntu­lauf­um.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert